Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1958, Síða 18

Náttúrufræðingurinn - 1958, Síða 18
72 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Árið 1632 rændu spænskir víkingar birgðastöð Hollendinga á eynni, og varð það til þess, að sjö menn voru látnir hafa þar vet- ursetu veturinn 1633-34. Svo hörmulega tókst til um þessa fyrstu vetursetu á eynni, að þeir létu allir lífið af skyrhjúg. En dagbæk- ur létu þeir eftir sig, og er margan fróðleik í þeim að finna um veðráttu og annað, þar á meðal landskjálfta, sem yfir þá dundi. Leiði þeirra eru á Hollenderhaugen, sem fyrr getur, en auk þess hefur þeim verið reist minningartafla úr steini í Rostungsvík. Sakir einhvers misskilnings er Sju hollenders bukta við þá kennd, en þar dvöldust þeir ekki. Var þetta eina vetursetan, sem kunnugt er um fyrr á öldum. Hvalveiðarnar tóku einnig skjótan enda. Hval- irnir hurfu frá eynni, og 1642 hættu veiðar þar með öllu. Síðan er næsta hljótt um útsker þetta í tvær aldir. Að vísu komu sjófarendur endrum og eins undir eyna, einkum hvalveiðamenn. Hollending- urinn Zorgdrager kom þar t. d. 1699 og gerði Iiann uppdrátt af eynni, sem Skotinn W. Scoresby jr. endurbætti síðar eftir komu sína til eyjarinnar 1817-18. Eftir 1840 taka Norðmenn að venja komur sínar til Jan Mayen. Þeir voru þá teknir að stunda selveiðar af kappi í Norður-íshaf- inu. Skip þau, er voru að veiðum í Vesturísnum, höfðu og bæki- stöð við eyna og leituðu þangað í var, þegar að þeim kreppti. Ýmsir skemmti- og vísindaleiðangrar komu við á Jan Mayen á 19. öld. Verður þar ekki annarra getið en leiðangurs Austurríkis- manna 1882-83. Höfðu þá 14 manns vetursetu í Maríuvík, þar sem nú er kallað Austurríki. Reistu þeir þar skála mikla, og unnu merkilegt rannsóknarstarf, gerðu nýjan uppdrátt af eynni og könn- uðu náttúru hennar eftir föngum. Var mikið rit gefið út um rannsóknir þessar, og eru þar margvíslegar upplýsingar um Norður- hafið. Var þetta fyrsta vetursetan eftir Hollendingana sjö. Hús Austurríkismanna stóðu fram yfir 1940, og voru þau oft notuð af veiðimönnum og öðrum, sem til eyjarinnar komu. En á stríðsár- unum voru þau rifin, og standa nú grunnarnir einir eftir ásamt veggjum af einum bjálkakofa. í grennd við rústirnar eru nokkrir legstaðir með brotnum trékrossum. Eftir aldamótin 1900 hefjast refaveiðar Norðmanna á Jan Mayen Höfðu þá 3—6 veiðimenn þar vetursetu á hverju ári. Höfðust þeir við í smákofum, sem enn standa víðs vegar um eyna, og refagildr- urnar eru óteljandi. Kofarnir eru hlaðnir úr rekadrumbum, varla

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.