Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1958, Page 19

Náttúrufræðingurinn - 1958, Page 19
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 73 manngengir á hæð, og ekki er gólfrýmið meira en rétt fyrir flet veiðimannsins og dálitla eldstó. Mun vistin þar haí'a verið heldur daufleg. Árið 1921 reistu Norðmenn veðurathuganastöð við Jamesons- vík, norðan við Eggey. Stóð hún fram á styrjaldarár. Eftir stríðið var stöðin flutt og reist að nýju á bökkunum norðan við Norðurlón. Er hún hin fullkomnasta að húsum og vélakosti. Átta menn hafa þar aðsetur, og er skipt um einu sinni á ári. Ýmsir dveljast þar þó tvö ár eða jafnvel lengur, því að heimskautalöndin hafa löngum heillað þá, sem komast í kynni við þau. Telja Norðmenn stöð þessa eina mikilvægustu veðurathugunarstöð sína. Ekki einungis vegna veiðiskipa í Vesturísnum, heldur einnig fyrir veðurspár vegna fiski- flotans í Norður-Noregi, því að frá Jan Mayen verður hezt sagt fyrir um veðrabrigði og illviðri, sem nálgast bæði úr suðri og norðri. Öldum saman var Jan Mayen einskismanns land, enda þótt ýms- ar þjóðir gerðu tilkall til hennar. Það er fyrst 1921, þegar Norð- menn reistu fyrstu stöðina, að þeir lýstu eignarhaldi á hluta af eynni, en 1929 var eyjan loks fullkomlega innlimuð í Noregsríki, og hefur verið svo síðan. Þegar heimsstyrjöldin síðari var komin í algleyming, og Þjóðverj- ar höfðu hernumið Noreg, skaut upp ugg hjá Vesturveldunum um, að þeir myndu setjast að á Jan Mayen, og hefði slíkt getað orðið örlagaríkt siglingum um norðurhöf. Því var það, að í marz 1941 sigldu norskar skútur með litla herdeild til Jan Mayen. Var norskur herflokkur þar síðan öll stríðsárin, og Bandaríkjamenn einnig síð- ast. Höfðu þeir meginbækistöðvar sínar í dalverpi upp frá Norður- lóni, en gæzlustöðvar víðsvegar um eyna. Sjást víða minjar um verk þeirra. Hermennirnir höfðu íslenzka hesta til flutninga, og einnig ólu þeir þar nokkrar sauðkindur og svín til slátrunar. Mun það vera eina húsdýrahaldið í sögu eyjarinnar. Ekki kom til hernaðar- átaka á Jan Mayen, en nokkrar loftárásir gerðu Þjóðverjar þar en fengu óblíðar viðtökur. íslendingar á Jan Mayen. Þjóðsögn ein segir frá því, að bónda nokkurn af Langanesi hafi hrakið á ísum til eyja norðaustur í hafi, sem sagan kallar Langa- neseyjar, og eru sagðar tvær að tölu. Hafði hann vetursetu þar, en

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.