Náttúrufræðingurinn - 1958, Síða 25
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
79
Verða þúfur þessar oft allmiklar um sig, eins og sjá má á 7. mynd,
sem er af fjöruarfaþúfu í sandinum í Viðarvík.
Sakir þess, hversu strjálvaxnar plönturnar eru, þá er naumlega
hægt að tala um gróðurfélög í orðsins venjulegu merkingu á Jan
Mayen, að minnsta kosti ekki, ef einungis er tekið tillit til háplantn-
anna. Flestar sömu tegundiinar koma fyrir í öllum þeim gróður-
lendum, sem þar er að finna. Eftir svip landsins og staðháttum hef
ég leitast við að flokka gróðurinn í eftirfarandi gróðurlendi: mel,
sand, mosaþembu, snjódæld og graslendi. Til þess að gefa nokkra
hugmynd um gróður þeirra, hef ég lýst nokkrum blettum, án þess,
að reynt sé að gera upp milli tegunda um tíðni þeirra á hverjum
stað eða hversu mikið þær þekja af yfirborði.
a. Melur. Vafalítið er, að langmestur hluti ai flatarmáli eyjar-
innar heyrir undir það, sem vér köllum mela. Á þeim öllum er
gróður mjög strjáll, ekki einungis háplönturnar heldur einnig
hinar lægri plöntur. Samt eru melarnir mjög misgrónir. Sums
staðar mega þeir kallast gróðurlausir með öllu, en á öðrum stöðum
eru smá mosaþúfur og fléttur, einkum gráfléttan (Stereocaulon
alpinum og S. arcticum), og síðan einstöku háplöntur. Þar sem
rakara er, og snjór liggur lengur fram eftir vorinu, svo að aurbleyt-
ur haldast þar um hríð, eru háplönturnar þéttastar. Algengustu
melategundirnar eru: þúfusteinbrjótur, vetrarblóm og músareyra.
Tafla I sýnir hverjar tegundir voru athugaðar á melum á fjór-
um mismunandi stöðum. 1 er á sendnum, smágrýttum mel upp
af Haugenstranda. 2 er á flötum, smágrýttum mel upp á Kval-
rossen. 3 er á allstórgrýttum mel nálægt miðri eyju milli Haugen-
stranda og Rekvedbukta, þar var allmikil aurbleyta, er athugun-
in var gerð. Og 4 er utan í fjallinu upp af Österrike, þar hallar
nokkuð til austurs, og er sýnilega snjóþyngra, en annars er títt á
melum, enda verður þar vart snjómosa (Anthelia) og gráflétta er
þar á víð og dreif.
Músareyra (Cerastium alpinum).................................... x x x x
Þúfusteinbrjótur (Saxifraga cœspitosa) .......................... x x x
Vetrarblóm (S. oppositifolia) ................................... x x x x
Dvergsteinbrjótur (S. tenuis) ................................... x
Lækjasteinbrjótur (S. rivulare) ................................. x x
Hreistursteinbrjótur (S. foliolosa) ............................. x