Náttúrufræðingurinn - 1958, Síða 40
94
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
hóla, gervigígi. Jarðvegur hefur svo myndazt fyrr á þessu en á hinu
gjallkennda hrauni.
Skammt austan við Ytri-Dalbæ og norðan Rásar liggja hin gömlu
Hólmstún með rústum af gamla Hólmsbænum, sem þar stóð áður
en Skaftáreldurinn brenndi mikinn hluta þeirrar jarðar 1783.
Ekki fæ ég betur séð en að þessi gömlu tún liggi líka á Landbrots-
hrauninu. Hins vegar get ég ekkert fullyrt um núverandi Hólms-
bæ að svo stöddu. Mjög greinileg „hraunbrún“ er þó rétt sunnan
við bæinn, og þar hverfa gjallhólarnir, en hvort hraunið sjálft
endar þar eða ekki skal ósagt látið.
Hvenœr brann hraunið?
Þorvaldur Thoroddsen liélt því fram, að hraunin í Landbroti og
á Mýrdalssandi væru frá sömu eldstöðvum og sama gosi, gosinu
í Eldgjá á Skaftártunguafrétti. Hann taldi líklegt, að þetta mikla
gos hefði átt sér stað eftir að land byggðist og sennilega nálægt
950 (5). Lengi hefur mér leikið grunur á, að þetta gæti ekki verið
rétt. Það er þó athyglisvert, að Landnáma getur ekki um Land-
brotið eða neina byggð á þeim slóðum. Sigurður Þórarinsson held-
ur því fram, að hraunið hafi örugglega runnið „nokkru fyrir land-
námsöld", en sé líklega ekki eldra en frá um 700 e. Kr. (8)
Neðantil í rofinu lijá Ytra-Dalbæ kemur fram allþykkt lag af
gróðurleifum. Þær eru sums staðar meira en einn metri á þykkt,
og ber þar mest á skógarleifum og viðar.
Þetta myndar ekki óslitið lag í rofinu, heldur kemur fyrir á
nokkrum stöðum. Mér þykir líklegast, að þarna hafi mest megnis
verið þurrlendi en með tjörnum og mýrabollum á stöku stað.
Sennilega hefur þarna verið dálítill skógur, en leifar þess gróð-
urs hafa varðveitzt aðeins þar, sem nægilegt vatn var fyrir hendi.
Birkilurkar eru þarna víða og ekki óalgengt að þeir séu 5—6 cm í
þvermál.
Sumarið 1953 tók ég sýnishorn neðst úr lurkalaginu hjá Ytri-
Dalbæ, og hefur það nú verið aldursákvarðað með C14 aðferð-
inni í rannsóknastofu háskólans í Uppsölum. Ákvörðun þessa hef-
ur Dr. Ingrid Olsson gert. Til frekari öryggis voru gerðar tvær
ákvarðanir á sama sýnishorni, sem merkt var U 3. Aldurinn er
talinn frá árinu 1957. Aldursákvarðanirnar sýndu 1710±120 ár
og 1910±120 ár.