Náttúrufræðingurinn - 1958, Side 43
NÁTTÚ RU FRÆÐIN GURINN
97
norður af Rauðunúpum, veiddist á svipuðum slóðum kringum
15. ágúst 1957, og sú þriðja, er merkt hafði verið 28 sjómílur norð-
ur af Hraunhafnartanga, 27. júlí 1955, veiddist einnig á Fladen-
grunni, kringum 25. ágúst 1957.
Þar sem þessar þrjár síldar koma hver úr sínum farmi, lítur út
fyrir að nokkuð hafi verið af krækiberjum frá Norðurlandi í ám-
unni á Fladengrunni 1957, dreift um stofninn. Athyglisvert er það
og, að síldamar voru ekki merktar á sama stað og tíma, meira að
segja ekki heldur sama sumarið. Er því ljóst að ekki var að ræða
um lítinn „hnapp“ af síld, er slæddist á þessar slóðir af tilviljun.
Spurningin er nú, hvernig þessar síldar hafi gengið. Engan efa
tel ég á því, að í fyrsta áfanganum hafi þær farið til Noregs og
hrygnt þar á venjulegum slóðum, ein vorið 1955 en hinar tvær
1956. Enginn getur vitað, hvort þær hafi slæðst í áttina til Norður-
lands næsta og næstu sumur, eða jafnvel gengið þar á mið, þótt þær
veiddust ekki. Eins getur verið, að þær hafi strax að lokinni fyrstu