Náttúrufræðingurinn - 1958, Qupperneq 44
98
NÁTTÚ RUFRÆÐINGURINN
hrygningu eftir merkinguna eða strax á næsta sumri komizt í Fladen-
grunn-félagsskapinn. (Sjá mynd á 97. síðu). Hafi svo verið, vaknar
sú spurning, hvort þær hafi síðan gengið á Noregsmið eða upp að
vesturströnd Svíþjóðar til þess að hrygna. Sú gáta verður ekki ráðin
að svo stöddu.
En hvað sem öðru líður, þá liafa þessar þrjár endurheimtur
sýnt það og sannað, að sumt af Norðurlands-síldinni slæðist suður
í Norðursjó — með Noreg sem millistöð. — Kunnugt er að nokkuð
er af mjög stórri og gamalli síld á svæðinu kringum Hjalteyjar
(Shetlandseyjar). Er það elliheimilið fyrir Norðurlands-síldina úr
Norðursjónum? Fróðlegt væri að rannsaka það atriði til hlítar.
SUMMARY
Three herrings, which had I)een tagged by nieans of internal tags off the
North coast of Iceland, one in July 1954 and two in July 1955, were caught
by swedish vessels on the Fladenground about August 20th 1957. The tags
were returned from a swedish reduction plarit. The possible route of migration
is indicated on the map.
Sitt af hverju
Ný aldursákvörðun á fjörumónum í Seltjörn.
í grein, sem birtist í Nfr. 1956 (Mórinn í Seltjöm), er þess getið,
að aldur neðsta og elzta fjörumósins í Seltjörn hafi verið ákvarðað-
ur í Yale með mælingum á geislavirku koli (C14) og hafi reynzt vera
9030±280 ár. í greininni voru leidd rök að því, að hér væri um
aldursákvörðun að ræða, sem væri mjög þýðingarmikil til fróðleiks
um afstöðubreytingu láðs og lagar hérlendis. En þar sem aðeins var
um eina ákvörðun að ræða, var ég dálítið hikandi við að draga af
henni ályktanir. Því var það, að er Þorleifur Einarsson, jarðfræði-
nemi, sem frjógreint hefur Seltjarnarmóinn, tilkynnti mér s. 1.
haust, að hann myndi, fyrir milligöngu próf. M. Schwarzbachs í
Köln, geta fengið eitt sýnishorn frá íslandi aldursákvarðað með
C14-aðferðinni, ákváðum við að taka að nýju sýnishom af elzta
Seltjamarmónum, til að fá frekari vissu um aldur hans. Nýlega barst
mér bréf frá próf. Schwarszbach, þar sem hann skrifar, að aldurs-