Náttúrufræðingurinn - 1958, Page 47
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
101
Ritstjóri Náttúrufræðingsins liefur sýnt mér bréf það frá Jóni
Arnfinnssyni, sem liér er birt, og beðið mig að svara því nokkrum
orðum. Eg mun freista Jjess, enda vikið í því að skoðunum mínum
á myndun Ásbyrgis, en kunningi minn, Jón Arnfinnsson, er auð-
sæilega vantrúaður á þær. Annars vonast ég til þess að geta gert
þessu viðfangsefni ítarlegri skil innan tíðar, í ritgerð, sem er í
smíðum. En það get ég þegar sagt, að sú skoðun mín um myndun
Ásbyrgis, sem ég hef liaft frá því er ég fór að kynna mér þetta
stórlenglega náttúrufyrirbæri, er óhögguð, sú skoðun, að Ásbyrgi
sé myndað við vatnsrof, enda jrótt vel megi vera, að sprungulínur
liafi einhverju ráðið um stefnu vatnsrásanna. Sú staðreynd, að
Jökulsárgljúfrið hjá Dettifossi er stöllótt en veggir Ásbyrgis þver-
brattir skýrist af Jjví, að við Dettifoss eru þykk millilög milli grá-
grýtislaganna, en engin slík millilög er að finna í veggjum Ás-
byrgis. Hins vegar er ég sammála Jóni Arnfinnssyni um jrað, að
líklega muni lausari lög að finna undir hamraveggjum Ásbyrgis
og því hafa fossarnir, er jiar voru að verki, haldizt þverbrattir. Ég
vildi og benda á það, sem sjá má á korti herforingjaráðsins, að
Jökulsá hefur verið á góðum vegi með að búa til annað Ásbyrgi
með því að grafa sér farveg vestan við Áshöfða, en nú rennur hún
um gljúfur með þverbröttum hamraveggjum austan höfðans. Það
er ekki rétt hjá Jóni, að hvergi sé farveg að sjá uppi á hamrabrún-
inni. Suður af Ásbyrgi er greinilegur farvegur, er fylgja má allt
suður í Jökulsárgljúfur hjá Rauðhólum, og hefur mikið vatn runn-
ið þar fram í eina tíð. Það, sem að mínum dómi er torskilið við
myndun Ásbyrgis, og eigi er rúm til að skýra hér, er ekki Jjað, að
byrgið sé myndað við vatnsrof, heldur sú staðreynd, að hvergi á
byrgisbotninum er að finna öskulögin ljósu frá Heklu, H3 og H4,
sem þó eru í jarðveginum á hóftungunni og á börmum byrgisins.
Þau er heldur ekki að finna í farveginum austur af byrginu, þótt
jjau séu á hrauninu beggja vegna við j:>ann farveg. Og hvergi hef
ég fundið þau í Jökulsárgljúfrinu, frá Hljóðaklettum suður fyrir
Réttarfoss, fyrr en komið er allhátt upp frá ánni. Með öðrum orð-
um: vatn hefur staðið hátt í Jökulsárgljúfri og runnið úr því norð-
ur í Ásbyrgi eftir að H3 myndaðist, en það var fyrir um 2700 árum.
Hvernig þetta má hafa skeð er óneitanlega athugunarefni, en ekki
verður jjað nánar rætt að sinni.
Sigurður Þórarinsson.