Náttúrufræðingurinn - 1958, Page 48
102
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Helge G. Backlund prófessor
3. sept. 1878 - 29. jan. 1958.
Við andlát Helge G. Back-
lunds, prófessors í Uppsala,
hvarf sjónum vorum ein-
hver merkasti bergfræðing-
ur sinnar tíðar á Norður-
löndum og þótt víðar væri
leitað.
Rannsóknarferill Back-
lunds hófst með vísindaleið-
angri til Spitzbergen árin
1899—1901, sem hann tók
þátt í tuttugu og eins árs að
aldri. Eftir það dvaldi hann
í Pétursborg, sem safnamað-
ur, unz hann flutti til Finn-
lands í rússnesku bylting-
unni 1917 og gerðist pró-
fessor í jarðfræði í Uppsöl-
um. Gegndi hann því starfi
til 65 ára aldurs, 1943.
Þekking Backlunds í fræðigrein sinni var víðtæk og alhliða, og
hefur hann meðal annars skrifað nokkuð á annað hundrað rit-
gerðir um jarðfræðileg efni. Um fjörutíu ára tímabil, en þó eink-
um meðan hann var á léttasta skeiði, tók hann þátt í fjölmörgum
rannsóknaleiðöngrum og kynntist þannig af eigin raun hinum
margháttuðustu jarðfræðilegu fyrirbærum.
Á unga aldri ferðaðist hann einkum um Rússaveldi, þar sem
hann í fyrsta lagi rannsakaði berggrunn Norður-Síberíu frá Ural-
fjöllum í vestri til Taimyrskagans í austri. Að því loknu hóf hann
að rannsaka fellingafjallgarða Suður-Síberíu. Upp frá því beindist
áhugi hans sér í lagi að jarðsögu fellingafjallanna og hinum óráðnu
gátum þeirra. Dvaldist hann tvö ár í Argentínu við rannsóknir á