Náttúrufræðingurinn - 1958, Síða 50
104
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
skifta. Jafnaldrar hans og kollegar, andstæðingar sem skoðanabræð-
ur, þekktu hann og viðurkenndu sem „den geistvollen Deuter der
irdischen Schmelze‘q). Það gerðu nánustu samstarfsmenn hans og
nemendur vissulega einnig. í þeirra augum var engu að síður
„maðurinn gullið, þrátt fyrir allt.“
Tómas Tryggvason.
Ritfregn
ÓLAFUR JÓNSSON: Skriðuföll og snjóflóð. Bókaútgáfan Norðri 1957.
Landmótnnarfræðin (geomorphology) er tiltölulega ung sem sjálfstæð fræði-
grein. Höfundar hennar eru venjulega taldir þýzki landfræðingurinn F. v.
Richthofen (1833—1905), sem í eina tíð var kennari Þorvalds Thoroddsens,
en er kunnastur fyrir rannsóknir sínar á uppruna lössjarðvegsins í Kína, og
bandaríski jarðfræðingurinn G. K. Gilbert (1843—1911), sem rannsakaði m. a.
myndun hins mikla Colorado gljúfurs. Viðfangsefni þessarar fræðigreinar,
sem tengir saman landafræði og jarðfræði, en venjulega er nú talin til landa-
fræðinnar, er myndun og þróun landformanna, landlagsins. Hún reynir að
skýra „vinnubrögð" þeirra afla, utanvirkra (exogen) og innanvirkra (endo-
gen), sem móta ásjónu móður jarðar, og túlka merkin þeirra verka. Það er
engin tilviljun, að þessi fræðigrein hefur þróazt bezt í Bandkríkjunum, sem
hafa upp á nær allar tegundir landslags að bjóða. Þar í landi er landmótun-
arfræðin líka mjög vinsæl meðal áhugamanna um náttúrufræði, enda eru
undirstöðuatriði liennar kennd með annarri landafræði í skólum, sem sam-
svara gagnfræða- og menntaskólum. Óviða á jörðinni er þó vænlegra til árang-
urs vísindamönnum og áhugamönnum að stunda þessa fræðigrein en á voru
landi íslandi. Hér liggur öll landmótun opnari fyrir og er auðveldar skýrð
en víðast annars staðar. Hér eru bæði hin utanvirku og innanvirku öfl enn
að verki og enn næsta mikilvirk. Þó hafa fáir hérlendis lagt stund á landmót-
unarfræði. Lang afkastamestur þeirra áhugamanna, sem þeirri fræðigrein sinna
nú hér á landi, er Ólafur Jónsson. Skóli hans í þessari fræðigrein hefur fyrst
og fremst verið landið sjálft, og það er góður skóli. Þó væri æskilegt, að Ólafur
kynnti sér meir en hann virðist hafa gert til þessa einhver af undirstöðu-
ritum þesarar fræðigreinar, einkum rit stórmeistarans W. M. Davis, sem eru
biblía landmótunarfræðinga.
1) Úr áletran Steinmann-heiðurspenings sem jiýzka jarðfræðifélagið sæmdi
Backlund á sextíu og fimm ára afmæli hans.