Náttúrufræðingurinn - 1934, Síða 27
NÁTTÚRUFR.
73
norðan og austanlands allt frá Hólum í Hornafirði til Akur-
eyrar. Þó virðist öskufallið ekki hafa náð allsstaðar út til
strandar, því frá Seyðisfirði er þess ekki getið.1)
Á Hólum í Homafirði og á Fáskrúðsfirði varð sporrakt.
Frá Brekku í Fljótsdal er þess getið að „töluvert öskufall
hafi verið þar kl. 7V4 á páskadagsmorgun.1)
Þórarinn Þórarinsson, cand theol. skýrir mér svo frá, að
á páskadagsmorgun hafi snjór verið svartur ofan til í Fljótsdal.
í Breiðdalsvík er þá einnig talið sporrakt, en þar hættir askan
að falla á páskadagsmorgun.1) Á Grímsstöðum á Hólsfjöllum
varð dálítið öskufall. í Vopnafirði féll aska síðla páskanætur.
í Reykjahlíð í Mývatnssveit byrjaði að falla kl. 7 á páskadags-
morgun og stóð öskufallið þar til kl. 10 f. m. Á Mýri í Bárðar-
dal gránuðu fannir og töluverð brennisteinslykt var þar talin
í lofti.1) Á Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu féllu 6*4 gr. af ösku
á 1 m2 kl. 12—4 á páskadag (smk. upplýsingum frá dr. Leifi
Ásgeirssyni skólastjóra). I Fljótshverfi og á Síðu féll ofur-
lítil aska svo rauk úr spori á harðlendi. í Álftaveri og Meðal-
landi virtist öskufallið hafa orðið meira en það varð í upp-
sveitum Skaftafellssýslu.
I Fljótshverfi sá á snoppum kinda, er þar höfðu gengið úti
meðan askan féll. Voru granir þeirra hrúðraðar og særðar.
Kemisk rannsókn á öskunni og vikrinum, sem gjörð var á
Efnarannsóknastofu ríkisins, leiddi í ljós þessa efnasamsetn-
ingu:
I. II. III. IV.
Si O2 48.40 47 40 47.80 48.10
Ah O3 14.00 14.50 13.40 13.20
Fe2 O3 2.30 3.00 10.50 7.55
Fe 0 12.80 11.35 5.00 838
Ca 0 1000 10,50 10.30 10.40
Mg 0 4.70 5.00 5.10 4.90
K2 0 0.23 036 0 20 . 0.36
Na2 0 2.50 310 3.30 2.30
Ti O2 3.20 3.10 3 00 3.20
P2 O5 0.20 0.18 0.20 0.19
S 03 1.00 0 95 0.80 1.00
S i sulfíði 0.10 0.10 0.08 0.10
Samtals 99,43 99.54 99.68 99.58
) Morgunblaðið, 4. apríl.