Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1967, Page 32

Náttúrufræðingurinn - 1967, Page 32
124 NÁTTÚRUFRÆÐl NGURJN N un dýra. Nýjum áfanga var náð í þróun Jiins lífræna efnis, en Irægfara Irrigð kjarnasýrunnar með samkeppni milli einstaklinga og úrvali Jiélt áfram um árþúsundaraðir að skapa og móta ótölulegan tegundafjölda plantna og dýra, sem við með sjálfsánægju teljum rísa hæst í manninum. Þess var áður getið, að kolefnið væri grundvallarfrumeind lrins lífræna efnis. Allt lífrænt er mismunandi flókið efnasamband kol- efnis. Fráleitt er að ætla, að kolefnissambönd séu einskorðuð við okkar jörð. Kolefnið er alheimsefni, og er eðlilegt að álykta, að lífræn efni og Jíf geti þróazt víðar í geimnum á hnöttum þar, sem liagstæð skilyrði eru fyrir hendi. Að vísu lrafa stjörnurýnendur og nútíma geimför ekki getað sýnt fram á, að líf væri á nærliggjandi reikistjörnum. Hins vegar hafa fundizt kolefnasambönd í loftstein- um, sem ekki eru óáþekk steingerðum veirum eða frumum í lögun. Gæti sá fundur bent til þess, að Jífrænt efni sé ekki óalgengt utan okkar jarðar, og gæti verið á ýmsu þróunarstigi. Á okkar hnetti eru lífverur einnig á ýmsum stigum þróunar og lralda áfram að þróast. Ekki er talið, að nýsköpun lífs eða Jífræns efnis eigi sér nú stað liér á jörð. Við látum okkur nægja að álykta, að aðstæður fyrir nýmyndun lífs Jrafi einungis verið liæfar fyrir 5 milljörðum ára, þegar lofthjúpur jarðar var án súrefnis og samanstóð af methani, ammóníaki, kolsýrlingi og vatnsgufu. Enda þótt lífræn efni gætu myndazt, yrðu þau efalaust jafn- skjótt innlimuð í stærri sameindir eða gleyptar af lífverum, sem fyrir eru. Hið nýmyndaða lífræna el'ni yrði því ekki uppliaf nýrra kynslóða eins og það, sem myndaðist liér á jörðu í árdaga. Charles Darwin skrifaði árið 1871: „En ef (og þvílíkt!, þvílíkt ef) unnt væri að sýna fram á, að í einhverri volgri tjörn, sem í væru alls kyns ammoníak og fosfórsölt, ljós, hiti og rafmagn, væri eggja- hvítuefni að myndast kemiskt og tilbúið að taka enn ílóknari breyt- ingum.“ Svíinn Gösta Ehrenswárd telur í bók sinni, Lífið: Uppruni þess og þróun, sem kom út á ensku 1962, að Jífrænt efni hefði getað tekið á sig flóknari myndir í nánd við jarðvarma. Aðstæðurnar hlutu að vera i'remur sjaldgæfar en á eins eða tveggja milljarða ára tíma gat töluvert myndazt af peptid-keðjum, segir hann. VeJ má þó vera að slíkar aðstæður, sem í árdaga komu af stað nýmyndun lífs, geti myndazt enn í dag. Helzt er að vænta þess á

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.