Náttúrufræðingurinn - 1967, Page 36
128
NÁTTÚRUF R Æ ÐIN G U RINN
I. mynd. Upprunástaöir sýnishorna.
Vig. 1. Original locations of samples.
í tveimur ritgerðum, og fer hér á eftir úrdráttur úr niðurstöðum
hans, tekinn upp úr síðari ritgerðinni (Trausti Einarsson 1948);
1. Elzta jarðmyndun Vestmannaeyja eru „norðurklettarnir“ í
Heimaey, þ. e. fjallgarður sá, sem hefst í Dalfjalli og myndar í
röð þaðan til austnorðausturs Hána, Klifið, Heimaklett, Miðklett
og Yztaklett. Þetta eru móbergsfjöll, skyld Eyjafjöllum og eins og
þau hluti hinnar síðkvarteru móbergsmyndunar Islands.
2. Næst að aldri eru „suðurfellin". Þau eru einnig úr eins konar
móbergi, þ. e. smágerri gosmöl, túffi, en sá munur á, að þetta
berg er allt vel lagskipt og yfirleitt miklu linara en í „norðurklett-
unum“. Úr þessari myndun eru Sæfjall, Kervíkurfjall, Litlhöfði