Náttúrufræðingurinn - 1967, Síða 38
130
NÁTTÚ RUFRÆÐ I N G U RI N N
2. mynd. Bergið hjá Garðsenda. Örin sýnir, hvar efni var tekið til aldurs-
ákvörðunar.
Fig. 2. The Gardsendi cliff. Location of sample for age determination indicated
by an arrow.
vitaskuld jarðveg ofansjávar, enda gerði hann ráð fyrir, að Heima-
ey hefði oftar en einu sinni risið úr sjó og dýft sér í aftur, eftir
að túffmyndun A varð til, og hallinn á lögum þeirrar myndunar
væri ekki upprunalegur heldur til kominn við höggun.
Núna, eftir það sem af er af eldgosinu í Surtsey, erum við reynsf-
unni ríkari. Þar hafa nú á nokkrum misserum hlaðizt upp álitlegar
hæðir úr túffi, sem að stærð, landslagi og gerð ertt að kalla eftir-
mynd „suðurfellanna“ í Heimaey. Og hin þykka hraunspilda, sem
einnig myndaðist í Surtseyjargosinu, er á sama hátt sambærileg við
Stórhöfða- og Helgafellshraunin í Heimaey. I Surtsey myndaðist
þetta allt ofansjávar og án nokkurrar vendegrar höggunar, og blasir
þó víða við glöggt mislægi milli myndana einnar og annarrar lotu
gossins.
Ekkert sé ég því til fyrirstöðu, að allur suðurhluti Heimaeyjar
sé myndaður með mjög svipuðum hætti og Surtsey, þ. e. í fáum,
Jangvinnum eldgosum ofansjávar. Þó hafa þau verið fleiri en eitt;