Náttúrufræðingurinn - 1967, Blaðsíða 51
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
143
æðar, sem veita honum inn í stærri vessaæðar, er loks flytja vess-
ann inn í blóðrásina. Jafnframt síast nýr vessi út úr háræðum blóð-
æðakerfisins. Þar sem blóðrásin er lokuð hringrás blóðæða: slag-
æða, háræða og bláæða, fer vessarásin aðeins hálfa hringrás innan
vessaæða: frá frumum líkamsvefjanna til blóðrásarinnar, en efni
vessans ferðast hinn helming leiðarinnar sem hluti blóðs innan
blóðæðakerfisins, svo sem þegar hefur verið lýst.
Hér verður ekki gerð frekari grein fyrir samskiptum blóðs og
vessa, þótt þau séu þess raunar verð. Ekki verður heldur rakin
blóðrásin og ráðstafanir líkamans til að ternpra hana, heldur verður
reynt að gera nokkra grein fyrir blóðinu.
Gerð blóðs
Innan æða og hjarta meðalmanns eru um fimm lítrar af vökva,
blóði. Framan af voru hugmyndir manna um rúnnnál blóðs næsta
óvissar. Fyrstu árangursríkar tilraunir til að mæla blóðmagn manna
voru gerðar árið 1855, er tæmt var allt blóð af réttuðum misindis-
mönnum. Síðustu dreggjarnar náðust úr þeim með því að dælt
var gegnum æðakerfi þeirra saltupplausn, unz allur litur var af
vökvanum, sem út rann. Nú er hægt að mæla með sæmilegri ná-
kvænmi blóðmagn manns, þannig að hinn mældi geti öðlazt hlut-
deild í niðurstöðu mælingarinnar. Er þá dælt í blóðið tilteknu
magni af einhverju efni, sem dreilist jafnt um blóðið allt, en
leitar ekki út úr því. Magn þessa efnis er síðan ákvarðað í ákveðnu
rúmmáli blóðs. Þynning efnisins er mælikvarði á blóðmagnið. Við
svona mælingar hefur t. d. verið beitt kolmónoxíði og geislavirk-
um rauðum blóðkornum, hvorutveggja að sjálfsögðu í svo litlu
magni, að ekki hlýzt tjón af.
Tæpur helmingur blóðs er með frumuskipulagi — blóðkornin, en
hitt er fljótandi — blóðvökvi eða blóðsegi (plasma).
Blóðkorn eru af þremur megingerðum: rauð blóðkorn, hvít
blóðkorn og blóðflögur. Eru hvítu blóðkornin stærst en fæst, hin
rauðu flest, en blóðflögurnar minnstar.
Rnuð blóðkorn
Rauð blóðkorn eru kringlóttar flögur, kjarnalausar, þynnstar
um miðjuna. Þvermál kringlunnar er innan við 1 /5 0oo mm, eða
um 8—9 [i (p eða míkrón cr i/^ooo mm). í mannsblóði eru um 5