Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1967, Síða 58

Náttúrufræðingurinn - 1967, Síða 58
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 150 vökva, sem getur leitt til krarnpa og gengið að manninum dauðum. Þetta var allvenjulegur kvilli með námamönnum, sem svitnuðu mjög í hita námanna, unz farið var að gefa þeim salt til uppbótar því, sem tapaðist með svitanum. Hormónatruflanir geta líka leitt til röskunar á saltjafnvægi (sjá t. d. pistil um thyreokalsítónín í síðasta hefti Náttúrufræðingsins). Eggjahvítuefni blóðvökva gegna margvíslegu hlutverki. Þau halda réttri seiglu á blóði og stuðla ásamt söltum og fleiri efnum að réttu osmótísku gildi þess eða uppsogsþrýstingi, sem er nauðsynlegur til að halda vatni og ýmsum efnum innan blóðrásarinnar. Án nægilegs eggjahvítumagns í blóðvökva dregst vökvi út úr blóðinu til vefj- anna umhverfis æðarnar. Ennfremur eru eggjahvítuefni blóðvökva næringarefni, sem frumurnar nota til endurnýjunar eggjahvítu sinni. Ýrnis mikilvæg efni berast líka um líkamann bundin eggja- hvítu í blóðvökva. Ónœmi Tiltekin eggjahvítuefni blóðvökva valda ónæmi líkamans, sem skiptir miklu máli, m. a. um varnir líkamans gegn sjúkdómum. Er maður smitast af sjúkdómi, orsakast einkenni sjúkdómsins af framandi eiturefnum — eggjahvítuefnum gerla, veira eða annarra smitvera. Um nokkurt skeið er líkaminn varnarlaus gegn þessum eiturefnum, en síðan er því líkast sem einhverjar frumur, líkast til frumur í eitlum (plasmafrumur), „taki mál af“ Jressunr eitruðu eggjahvítuefnum og smíði sérhæfð eggjahvítuefni — mótefni, sem bindast eiturefnunum og gera þau óvirk. Þessi mótefni eru nú framleidd í miklu magni og berast um líkamann, unz eitrið er allt óvirkt gert og fullur sigur unninn á veikinni og sýklunum. Um nokkurt skeið eftir að veikinni lýkur — mislangt, eftir því hver sjúkdómurinn er — heldur framleiðsla mótefnanna áfram, og þá er líkaminn ónæmur gegn veikinni. Ónæmi gegn sumum sjúkdóm- um — framleiðsla mótefnanna — helzt ævilangt: þessa sjúkdóma fær hver maður aðeins einu sinni á ævi. Læknisfræðin kann skil á aðferð til að framkalla ónæmi gegn sjúkdómum án þess menn veikist af þeim — með bólusetningu. Þá eru sérlegir stofnar sýkla ræktaðir á rannsóknarstofum lækna, stofnar, sem valda ónæmi gegn veikinni án þess að framkalla sjúkdómseinkennin. Stöku sinnum má finna svona stofna í náttúrunni, svo sem er Edward Jenner,

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.