Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1994, Qupperneq 24

Náttúrufræðingurinn - 1994, Qupperneq 24
styrk C02 í andrúmsloftinu. Breytingar á styrk gróðurhúsalofttegundarinnar metans (CH4), sem ekki eru sýndar á myndinni, reynast einnig hafa verið að mestu sam- stiga breytingum á styrk C02. Myndin sýnir að hitasveiflur milli hlýskeiða og síð- asta kuldaskeiðs voru allt að 8°C á Suður- skautslandinu og sveiflur í styrk C02 voru u.þ.b. 100 ppm. Engar fullnægjandi skýr- ingar eru á sveiflunum í styrk C02 en talið er líklegast að þær séu af völdum breytinga á hringrás sjávar. Höfin innihalda u.þ.b. 50 sinnum meira af C02 á uppleystu formi en nú er í andrúmsloftinu. Styrkur C02 í and- rúmsloftinu og styrkur þess í yfirborðs- lögum sjávar eru í flóknu jafnvægi sem háð er sjávarhita og ýmsum fleiri atriðum. Breytingar á hafstraumum, sem flytja upp- leyst C02 úr yfirborðslögum niður í haf- djúpin, eða breytingar á sjávarhita eru taldar geta valdið miklum sveiflum á styrk C02 í andrúmsloftinu en ekki er mönnum fullljóst hvemig þessar breytingar eiga sér stað. Sé litið á 6. mynd í smáatriðum kemur í ljós að ákaflega erfltt er að segja til um það hvort styrkur C02 fellur áður en kólnar eða öfúgt. Lítill vafí er þó talinn á að C02 eigi mikinn þátt í hitamun hlýskeiða og kulda- skeiða og er það ein veigamesta röksemdin fyrir því að vaxandi styrkur C02 nú á tímum muni leiða til hlýnunar. ■ ORSAKIR VEÐU RFARS B REYTINGA Orsakir veðurfarsbreytinga geta verið margar. Fyrst er að geta breytinga á af- stöðu meginlanda, sem og hlutfalls flatar- máls lands og sjávar. Almennt má segja að þessir þættir geti vart skýrt annað en breytingar sem taka milljónir ára. Reglubundnar breytingar eru á afstöðu jarðar og sólar. Nú sem stendur er jörð t.d. næst sólu nærri áramótum en fjærst í byrjun júlí. Halli jarðmönduls miðað við braut jarðar breytist örlítið í tímans rás og lögun jarðbrautarinnar er einnig breyting- um háð. Þessar breytingar eiga sér stað á tugþúsundum ára. Sýnt hefur verið fram á með tölfræðilegum rökum að mismunur í sólgeislun á norðlægum breiddargráðum af þessum völdum geti skýrt tíðni stærstu hitasveiflna innan hvers jökulskeiðs og e.t.v. einnig tíðni jökulskeiða. Það hefur þó vafíst fyrir mönnum að tengja þetta á full- komlega sannfærandi hátt, ekki síst vegna þess hversu litlar breytingamar í sól- geisluninni eru. Sumir telja að rykmengun utan úr geimnum sé mjög mismikil og að hún geti stundum orðið svo veruleg að áhrif hafí á hitafar á jörðinni. Breytingar í útgeislun sólar hafa einnig verið nefndar í þessu 7. mynd. Lóðrétt hringrás heimshafanna, „fœribandið “ (ICSU/WMO 1992). 18
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.