Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1994, Side 31

Náttúrufræðingurinn - 1994, Side 31
11. mynd. Dreifing hlýnunar (°C) yfir jörðina 60-80 árum eftir að styrkur gróðurhúsa- lofttegunda byrjar að aukast (Manabe o.fi. 1991). nátengt hafinu er því ekki hægt að leggja mikið upp úr þessum niðurstöðum hvað Is- land varðar. LÍK.ÖN MEÐ HAFSTRAUMUM Veðurfarslíkön sem reikna með áhrifum hafsins eru ný af nálinni og er ekki komin mikil reynsla af notkun þeirra. Eins og minnst var á að framan eru líkön af þessum toga ófær um að endurspegla núverandi loftslag á jörðinni nema reiknað samspil hafs og andrúmslofts sé leiðrétt með hálf- gerðu svindli í átt til þess sem nú mælist, og dregur þetta að vissu marki úr trausti manna á líkönunum. Hins vegar hafa þessi nýju líkön aukið mjög skilning á samspili hafsins og andrúmsloftsins og mikilvægi hafstrauma í sambandi við veðurfars- breytingar. Jafnframt hafa þau leitt í ljós að breytingar á hafstraumum munu skipta sköpum í sambandi við dreifmgu hlýnunar af völdum gróðurhúsaáhrifa yfir jörðina. Einungis fjórar rannsóknarstofnanir hafa til þessa birt niðurstöður úr veðurfars- líkönum sem reikna með áhrifum hafsins (Fenger og Torp 1992). Jafnvægishlýnunin AT2C02 og hraði hlýnunarinnar, þegar styrk- ur gróðurhúsalofttegunda vex jafnt og þétt um 1% á ári, reiknast svipuð í þessum líkönum og með einfaldari líkönum sem ekki taka tillit til breytinga í hafínu, þ.e. AT2C02 er 1,5-4,5°C og hraði hlýnunarinnar er um 0,3°C á áratug (sjá 10. mynd). DREIFING HLÝNUNAR Ef styrkur gróðurhúsalofttegunda er látinn vaxa hægt með tíma fylgir dreifing hlýn- unarinnar yfír jörðina ákveðnu mynstri sem helst svipað eftir því sem tíminn líður. Dreifmg hlýnunarinnar samkvæmt banda- rísku reiknilíkani er sýnd á I 1. mynd. Á 12. mynd er hins vegar sýnd niður- staða þýsks líkans um dreifíngu hlýnunar- innar. Myndirnar cru að mörgu leyti sam- bærilegar en munur er þó verulegur víða á jarðarkringlunni, sérstaklega I grennd við Suðurskautslandið og á N-Atlantshafi. Eins og búast mátti við spá þessi líkön því að hafsvæði hlýni minna en meginlönd. Hlýnunin er mest nærri heimskautunum eins og samkvæmt einfaldari líkönum. Hins vegar reiknast mun minni hlýnun yfir hafsvæðum í grennd við Suðurskautslandið og yfír N-Atlantshafi en einfaldari líkön bentu til. Þetta kemur til af því að sam- kvæmt reikningunum mun draga úr lóð- réttri blöndun og myndun djúpsjávar á 25

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.