Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1994, Page 39

Náttúrufræðingurinn - 1994, Page 39
2. mynd. Þessi mynd, sem Carl Clusius dró árið 1605, er af mun grennri fugli (National Museum ofScotland). í Lundúnum og haus í Kaupmannahöfn. A hinn bóginn hafa hundruð beina úr dúðum verið grafin upp úr mýrum á Máritíus. Mörg þessara beina mældi og vó Kitchener og beitti ýmsum aðferðum dýrafræðinga, sem hér verða ekki raktar, til að kanna þyngd og lögun fúgl- anna sem báru beinin í mýr- unum. Er skemmst frá því að segja að allar leiddu að- ferðirnar til sömu niður- stöðu: Dúðinn vó milli 10,6 og 17,5 kg - ekki 23 kg eða meira, eins og áður var tal- ið. Hér munar um helmingi. Hver er skýringin? Kitchen- er telur að fuglamir sem fluttir voru til Evrópu hafi verið stríðaldir um borð í skipum á leiðinni og því komið óeðlilega feitir á áfangastað. Það er af mál- verkum af þessum fúglum sem hefðbundin mynd okkar af dúðum er fengin. Si/MARFITA? Hollenskur fuglafræðingur, A.C. Oude- mans, benti árið 1917 á að algengt er að fuglar safni fitu á sumrin og leggi svo af yfir veturinn. Með þessu vildi hann skýra muninn á holdafari dúðanna á myndunum sem varðveist hafa. Mælingar Kitcheners gefa hins vegar til kynna miklu meiri mun en svo að þessi skýring geti átt við, auk þess sem allir grönnu dúðarnir voru teikn- aðir í heimahögum (2. mynd) en þeir feitu í Evrópu. Þótt Thomas Herbert hafi komið til Máritíus árið 1627 er lýsing hans á dúð- um, þar sem hann tilgreinir þyngdina 50 pund (23 kg) eða meira, ekki skráð fyrr en 1634. Hún gæti því átt við fugla í Evrópu. Aðra skráða heimild hefur Kitchcner ekki fundið um þyngd dúða. Ut frá styrk beina og festingu vöðva við þau er hægt að bera saman hlaupahæfni misstórra dýra ef þyngdin er þekkt. Með þessari aðferð, sem kennd er við breskan dýralfæðing, McNeil Alexander, sýndi Kitchener fram á að 23 kg dúði hefði verið stirður til gangs. Þrettán kílóa dúði hefði hins vegar getað sprett úr spori. Fótfráir kúlurassar Volquard Iversen hét maður sem var árið 1662 skipreika á smáey út af suðaustur- strönd Máritíusar. Hann færði í letur athug- anir sínar á fúglalífi á eynni. Þar segir meðal annars: „Meðal fúgla má nefna þá sem á Indíum ganga undir nafninu doddaersen (,,kúlurassar“). Þeir voru stærri en gæsir en ófleygir. I stað vængja báru þeir smáblöðkur en voru afar fráir á fæti.“ Gamlar myndir finnast Arið 1991 frétti Kitchener af teikningum af dúðum frá árunum 1601 og 1602 sem nýfundnar voru í Haag en höfðu þá legið í gleymsku í hálfa aðra öld (3. mynd). Þær eru af háfættari og mun grennri fuglum en síðari tíma málverk gefa til kynna. 33

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.