Náttúrufræðingurinn - 1994, Page 55
1. mynd. Horft til jarðar frá tunglflaugiimi Appollo 11. með yfirborð tunglsins í for-
grunni. Samkvœmt kenningum Ptólemaíosar var jörðin miðpunktur alheimsins og himin-
tunglin gengu umhverfis hana á kristalhvelum. þar með talin sólin sjálf. Mynd NASA.
liggur er svo mikið að vöxtum og gæðum
að furðu gegnir. En einmitt á sviði náttúru-
fræði og eðlisfræði var það sem hann hafði
fram að færa ærið gloppótt. Hins vegar
naut Aristóteles svo mikillar virðingar að
mönnum datt ekki í hug að efa það sem
hann lagði til mála. Öldum saman veltu
fræðimenn ritum hans fyrir sér, grúskuðu í
því sem hann hafði skrifað og deildu
stundum um hvemig bæri að skilja hann, í
stað þess að rannsaka hlutina sjálfir.
Þannig varð þessi mæti maður og mikli
spekingur dragbítur á eðlilega þróun
vísinda í sumum greinum í stað þess að
hrinda henni fram.
Eitt af því sem Aristóteles hélt fram var
að þungir hlutir féllu hraðar en léttir.
Samkvæmt því er það „eðli“ lítils steins að
falla hægar en annar stærri. Séu steinamir
nú bundnir saman og látnir falla er hægt að
álykta á tvo vegu: Annars vegar má hugsa
sem svo að létti steinninn, sem eðli sínu
samkvæmt fellur hægar, dragi úr ferð þess
stærri, þannig að bundnir saman ættu
steinamir að falla með hraða sem liggur
einhvers staðar á milli hraða þeirra hvors
um sig. Hins vegar má líta á steinana
bundna saman sem einn hlut sem er ennþá
stærri en stóri steinninn og ætti því að falla
með enn meiri hraða en hann. Einkennilegt
er að sá mikli rökfræðingur Aristóteles
skyldi ekki taka eftir þessu, og ekki heldur
þeir menn sem í fótspor hans fylgdu öld
eftir öld.
■ TILRAUNIN LEIDD TIL
ÖNDVEGIS
Um merka menn myndast oft þjóðsögur
sem erfitt er að henda reiður á hvort eru
sannar eða ekki. Raunar skiptir það sjaldn-
ast miklu máli, þær gætu verið sannar og
þær varpa ljósi á manninn, afrek hans og
viðhorf samtímamanna til þeirra. Ein af
frægustu sögunum af Galileó Galílei er sú
að þegar hann var ungur háskólakennari í
Písa og farinn að efast um kenningar Arist-
ótelesar hafi hann látið stóra og litla steina
falla ofan af skakka turninum í Písa. Hann
49