Samvinnan - 01.12.1949, Síða 21
En eins og fyrr segir:
veltufé P. V. var nær ein-
göngu lánsfé. Framtíð fé-
lagsins var því mjög ótrygg.
— Jafnvel smávægilegustu
breytingar í viðskiptalífinu
gátu riðið Pöntunarfélag-
inu að fullu. I marz árið
1935 var t. d. 92.3% veltu-
fjárins lánsfé. I ársbyrjun
1937 var 65.8% veltufjárins
lánsfé. Það, sem verra var:
mest allt lánsfé félagsins var
tekið til skamms tíma. Til-
tölulega lítill hluti þess var
lán til langs tíma.
Stofnun og starfrœksla
KRON.
Ein af starfsreglum Sam-
bands íslenzkra samvinnu-
félaga gerir ráð fyrir því,
að aðeins eitt kaupfélag frá
hverju félagssvæði fái inn-
göngu í S.Í.S. Þetta ákvæði
olli því, að hvorki Kaupfé-
lag Reykjavíkur né Pönt-
unarfélag verkamanna fékk
inngöngu í Sambandið.
Forráðamenn kaupfélaganna í Rvík
gerðu sér ljóst, hversu mikill hagur
það yrði fyrir félög sín að vera í Sam-
bandinu. Þess vegna sóttu félögin
hvort í sínu lagi æ ofan í æ um inn-
göngu í S. I. S. Svar sambandsstjórnar
hlaut hins vegar alltaf að verða á einn
veg: Sameinið K. R. og P. V. og mynd-
ið þannig eitt kaupfélag á félagssvæð-
inu Reykjavík. Fyrr getum við ekki
veitt ykkur inngöngu í Sambandið.
Forráðamenn félaganna tveggja
fóru nú að ræðast við og þreifa fyrir
sér um sameiningu. Fyrst í stað gengu
sameiningartilraunirnar illa, og mis-
jafnlega gengu þær lengi vel. Afleið-
ing þeirra varð þó að lokum sú, að
félögin voru sameinuð og Kron stofn-
að.
Kron var formlega stofnað af fimm
félögum í Reykjavík og nágrenni í
ágústmánuði 1937. Félögin, sem að
stofnuninni stóðu, voru Kaupfélag
Reykjavíkur, Pöntunarfélag Verka-
manna, Pöntunarfélag Verkamanna-
félagsins Hlíf, Pöntunarfélag Verka-
lýðs- og Sjómannafélags Keflavíkur,
og Pöntunarfélag Sandgerðis. Nafn fé-
lagsins var ákveðið Kaupfélag Reykja-
Núverandi stjórn Kron ásamt með framkvœmdastjóra, félagsmálafulltrúa og endurskoðanda. Talið frá
vinstri: Ari Finnsson, Jón Brynjólfsson, Guðrún Guðjónsdóttir, Guðmundur Tryggvason, Sveinbjörn
Guðlaugsson, ísleifur Högnason, Sigfús A. Sigurhjartarson, Theodór B. Lindal, Þorlákur G. Ottesen,
Kristjón Kristjónsson, Björn Guðmundsson og Björn Jónsson.
víkur og nágrennis og skammstöfun
þess, Kron, samþykkt. Meðlimatala fé-
lagsins í árslok fyrsta starfsársins, 1937,
var 2,822.
Eitt af fyrstu verkum forráðamanna
Kron var að sækja um inngöngu í S.
I.S. Nú var þetta auðsótt. Félagið hef-
ur á seinni árum verið stærsta kaup-
félag innan Sambandsins að meðlima-
fjölda, og allt frá upphafi hefur það
keypt að jafnaði 40 til 50% af vörum
sínum í S.Í.S.
Kron hefur verið í stöðugum vexti
bæði hvað snertir viðskiptaveltu og
félagsmannafjölda. Eftirfarandi tafla
sýnir þróun félagsmannafjölda og við-
skiptaveltu Kron.
TAFLA II.
Félagsmannafjöldi og viðskiptavelta í
Kron í árslok nokkurra ára
Ár: Félagsmenn: Viðskiptavelta:
1937
1939
1942
1944
1946
1948
2,882
3,340
4,071
4,698
6,043
6,072
kr.
1,234,109,00
2,509,911,00
10,882,419,00
13,390,636.00
14,374,586.00
15,496,596,00
Aths.: Nokkur hluti aukningar við-
skiptaveltunnar kemur fram vegna
aukinnar dýrtíðar í landinu. Vísitala
framfærslukostnaðar var 100 í sept.
1939 en 326 í des. 1948.
Kron stofnsetti all-margar sölubúðir
í Reykjavík strax á fyrstu starfsárum
sínum. Einnig starfrækti það nýtízku
sölubúðir í Hafnarfirði, Sandgerði,
Grindavík og Keflavík. Félagið ein-
skoraði sig ekki við sölu matvara eða
brýnustu nauðsynjavara. Það stofnaði
búsáhaldadeild, bókaverzl., listmuna-
verzlun og fleiri starfsdeildir. Þá starf-
rækti félagið einnig saumastofu um
hríð, efnagerð, pylsugerð og fatapress-
un.
Hélt niðri vöruverði.
Kron hélt vöruverðinu niðri í
Reykjavík allt frá því að það var stofn-
að og fram til þess tíma, að opinbert
verðlagseftirlit var framkvæmt á ís-
landi.
Fyrirrennarar félagsins, Kaupfélag
Reykjavíkur og Pöntunarfélag Verka-
manna, seldu vörur að jafnaði 15 til
20% ódýrara á fyrstu starfsárum sín-
um en kaupmenn höfuðstaðarins. Þá
viðhöfðu bæði félögin pöntunarstarf-
semi. Síðar opnaði K. R. sölubúðir og
21