Samvinnan - 01.12.1949, Side 33

Samvinnan - 01.12.1949, Side 33
Á veðurstofunni er aldrei dagur og aldrei nótt, heldur aðeins lágþrýsti- svæði og háþrýstisvæði og það, sem þar er á milli. Þar er unnið jafnt all- ann sólarhringinn og 365 daga á ári nema þegar hlaupár er. Leiðinlegan rigningarmorgun, þeg- ar ísland er á milli lágþrýstisvæðis og háþrýstisvæðis, og skip vestur af Spán- arströndum sendir fregnir norður til Islands um sól og sumar þar suðurfrá, er annríkið í algleymingi í veðurstof- unni. Stúlkan við símann, sem tekur við veðurfregnum utan af landi frá hinum ýmsu veðurathugunarstöðvum, heyrir illa og kallar hátt og er orðin óþolinmóð, sem heldur er engin furða. Aðstoðarmaðurinn við næsta borð teiknar veðurlýsingarnar jafn óðum inn á veðurkort af íslandi og sjálfrit- andi rafmagnsvélar hamast í opnum skápum á veggnum og rita niður veð- urlýsingar frá fjarlægum stöðum, svo sem Gander, Prestvík, Stokkhólmi og 'R VEÐRIÐ? tir Guðna Þórðarson Hlynur Sigtryggsson ?íj hann gerir neestu veðiírspá. Veðurkortin og spddómarnir. Aðalveðurkort eru gerð fjórum sinnum á sólarhring með sex klukku- stunda millibili. Á þessi kort eru skráðar allar þær mörgu upplýsingar, sem berast veðurstofunni um veður og skýjafar á stóru svæði umhverfis ís- land. Veðurfregnirnar berast frá fjar- lægum stöðum eins og Alaska, Florida, sunnan af Atlantshafi allt suður fyrir Spán, frá Evrópulöndunum og Græn- landi. En það er samt veðurfregnirn- ar að sunnan og vestan af hafi, sem valda íslenzku veðurfræðingunum mestum áhyggjum. Það, sem þar ger- ist, hefur einmitt mikil áhrif á veður hér á landi, en veðurathugunarstöðvar eru færri á þessum stöðum og dreifð- ari en annars staðar, þar sem veður- fregnir eru fengnar frá, nema norð- an frá Grænlandi, sem minna gerir til. Þess vegna er það, að veðurbreytingar gerast oft skyndilega vegna áhrifa Stúlkan sendir með fjarritara veðurfregn- Stúlkan við simann tekur á móti veðurfregn- irnar frá Reykjavik til flugvalla á Nýfundna- um frá athugunarstöðvunum út á landi. landi, Bretlandi og Sviþjóð. Frú Theresia Guðmundsson veðurstofustjóri á skrifstofu sinni, en hun verður að annast miklar bréfaskriftir fyrir stofnunina út um heim allan. New York. Óðfluga nálgast sá tími að ný veðurspá er gefin út og þá eru allar þessar þýðingarmiklu upplýsingar sem allt snýst um, úr sögunni og heyra for- tíðinni til. 33

x

Samvinnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.