Samvinnan - 01.12.1949, Blaðsíða 34
/ bókasafni veðurstojunnar eru bœkur um veöurfrœöi og skyldar greinar og veöurskýrslur
viðsvegar að úr héimirium.
lýsingar til flugmanna, sem fljúga
milli staða á Islandi.
Það er óhætt að segja það íslenzku
veðurstofunni til hróss, að erlendir
flugmenn sem fljúga um Norður
Atlantshaf og njóta fyrirgreiðslu hér,
bera þjóðinni vel söguna hvað þetta
snertir, og ennfremur nýtur starf ís-
lenzku loftskeytamannanna í Gufu-
ness-stöðinni álits á erlendum vett-
vangi. íslendingar fá líka greiddar
LesiÖ á loftvogirnar.
þarna sunnan að, sem ekki hefur verið
liægt áð sjá fyrir, og þá standast veður-
spárnár ekki.
Þegar búið er að gera nákvæmt
veðurkort af stórum hluta heimsins og
teikna inn á það lágþrýstisvæði og há-
þrýstisvæði, ásamt mörgum upplýsing-
um um storma, áttir og hitastig, er
spáin gerð eftir þessum heimildum, og
það er fyrst og fremst undir þeim kom-
ið, hvort spáin reynist sönn eða ein-
hverju .skakkar.
Sunnan og vestan úr hafi koma
veðurfregnirnar frá veðurathugunar-
skipum, sem þarna eru staðbundin, og
ennfremur frá skipum, sem eru á ferð.
Þessum veðurfregnum er náð, ásamt
veðurfregnum frá mörgum athugunar-
stöðvum á landi, með loftskeytatækj-
um, og eru alltaf tveir loftskeytamenn
á veðurstofunni önnum kafnir við að
taka á móti fréttum um veður, storma
og regn frá fjarlægum löndum.
Veðurþjónusta vegna flugmála.
Starfsemi veðurstofunnar er ekki
eingöngu bundin við veðurspárnar,
sem við heyrum í útvarpinu, hún er
miklu víðtækari. Veðurþjónustan
vegna flugvélanna, sem fara yfir höf-
in í kringum ísland, er mikilsverður
þáttur í starfsemi veðurstofunnar og
tímafrekur. Þó þarf veðurstofan í
Reykjavík ekki að afgreiða veðurkort
til annarra flugvéla en þeirra, sem
nota Reykjavíkurflugvöllinn, og er
það þó ærið starf. En veðurlýsingar
eru sendar út til flugvéla, sem eru á
norðurleiðinni milli heimsálfanna.
Vcðurstofustjóri, frú Tlieresia Guðmundsson,
og aðstoðarstúlka hennar athuga jarðskjálfta-
mœlana.
Hver einasta flugvél, sem ætlar héð-
an til útlanda, verður að fá nákvæmt
veðurkort af leiðinni, sem fljúga á, og
er mikil vinna við að gera slíkt kort
úr garði. Á það eru teiknaðar þ.er
upplýsingar, sem fyrir liggja, og jafn-
vel skýjafar merkt inn á kortið. Enn-
fremur gefur veðurstofan út veður-
Loftskeytamennirnir athuga á kortinu stað-
arákvörðun skips, sem búið er að senda þeim
veðurlýsingu.
háar fjárhæðir á ári hverju af alþjóða-
fé fyrir starfsemi sína við veðurþjón-
ustu á Norður-Atlantshafi.
Var jarðskjálfti suður í Jaþan?
Þannig er starfsemi veðurstofunnar
tengd starfsemi manna í lofti, á láði
og legi. En þó undarlegt megi virðast,
gerum við fæst okkur grein fyrir því,
hvernig starfsemi veðurþjónustunnar
er háttað, né því, hversu umfangs-
(Framh. á bls. 60)
34