Samvinnan - 01.12.1949, Qupperneq 36
Séra Þormóður Sigurðssoti á Vatnsenda pré-
dikar i Vaglaskógi á afmcelishátiðinni.
menn fyrir félagið. Baldvin var fyrsti
formaður þess (þá sama og kaupfélags-
stjóri).
Félagið óx og dafnaði með miklum
hraða; á þriðja starfsári þess, ,1892
gengu í félagið fjölmennar deildir úr
sveitum vestan Eyjafjarðar: Svarfaðar-
dal, Arskógsströnd og Möðruvalla-
sókn. Næstu árin er því félagið um-
fangsmesta verzlunarfyrirtæki hér um
slóðir. Aðalverzlunarstaðurinn var að
sjálfsögðu á Svalbarðseyri, en útibú,
eða réttara sagt vöruafgreiðsla fór
fór einnig fram á Hjalteyri og í Hrís-
ey. Þessar deildir voru í félaginu, þegar
flest var um, 1904: Ljósvetningadeild,
Illugastaðadeild, Hálsdeild, Drafla-
staðadeild, Svalbarðsdeild, Höfða-
deild, Fjarðardeild, Svarfdæladeild,
Galmastrandardeild. Árskógsdeild,
Hjalteyrardeild, Ósdeild og Möðru-
valladeild. Þegar við lítum til baka
yfir þessi bernskuár félagsins, og at
hugum þetta stóra verzlunarsvæði, þá
sjáum við, hversu samvinnufélags-
skapnum hér var glæsilega tekið, enda
mætti sannarlega nefna þetta tímabil
gullöld félagsins. En brátt heyrast
raddir um það, að félagssvæðið sé of
stórt, deilur koma upp á milli félags-
manna, austan og vestan Eyjafjarðar.
Vestanmenn vildu lofa saltfiski fyrir
úttekt sinni, en austanmenn voru því
andvígir, og töldu að fiskur í sjó væri
lélegri gjaldeyrisloforð en sauðir á af-
rétt. Um þetta og fleiri atriði var
þráttað á nokkrum aðalfundum, radd-
ir um skiptingu félagsins færðust í
aukana. Loks var tillaga um slíka
skiptingu borin fram og samþykkt á
aðalfundi 17. janúar 1905, og gengu
þá frá allar deildir vestan Eyjafjarðar,
ásamt Höfðahverfi, og var þar höggvið
stórt og örlagaríkt skarð í félagsstarf-
semina, því að þessar deildir munu
hafa haft um af allri viðskiptaveltu
félagsins, en nú mynduðu þær sér-
stakt félag, Kaupfélag Eyjafjarðar, og
greiddi Svalbarðseyrarfélagið því út
um 12.450 krónur í sjóðum og hús-
eignum, en átti sjálft eftir um kr.
9.450.
Svalbarðsströndin, Fnjóskadalurinn
og Ljósvetningadeildin héldu áfram
félagsskapnum einar sér, nema að
Höfðahverfið kemur aftur við sögu
1908—1915. En árið 1934 verður enn
mikil breyting á félagsstarfseminni.
Nokkurrar óánægju fór að verða vart
vegna skuldamála innan félagsins, og
út af pöntunarfyrirkomulaginu. Það
fóru að verða háværar raddir um að
hafa opna sölubúð á Svalbarðseyri, og
sem fjölbreyttastar vörur. En það voru
fleiri, sem ekki vildu víkja frá gamla
pöntunarfélags-fyrirkomulaginu. Þess-
um málum lauk svo, að Svalbarðs-
ströndin sagði sig úr félaginu, 1934,
og var það að sjálfsögðu mikill hnekk-
ir. Þegar hér er komið málum, er því
saga félagsins skuggalegir tímar. Félag-
ið er þá orðið framandi gestur á eigin
verzlunarstað. Félagsmannahópurinn
er því nokkuð þunnskipaður, aðeins
Fnjóskadalurinn og Ljósvetninga-
deildin, en áfram er haldið, eins og
ekkert hafi í skorist, og pöntunarfé-
lags-fyrirkomulaginu er haldið áfram.
Fáum árum síðar, eða 1939, kemur
Svalbarðsströndin aftur sem virkur
þátttakandi í féagsmannahópinn, og
Höfðahverfi 1941, og eru nú alls 10
deildir í félaginu.
Kaupfélag Svalbarðseyrar hafði
haldið lengur pöntunarfyrirkomulag-
inu, en nokkurt annað samvinnufélag
hér á landi, eða um 50 ár. Þetta fyrir-
komulag hafði að ýmsu leyti gefizt
vel, og raunar má segja, að því hafi
aldrei verið hafnað, heldur voru það
hinar breyttu siglingaaðferðir stríðs-
áranna og umhleðslufarganið, ásamt
betri og greiðari samgöngum, sem hér,
eins og víða annars staðar, skolaði
burtu gömlum aðferðum, sem höfðu
verið þessu félagi að sumu leyti nota-
drjúgt fyrirkomulag í nærri 50 ár.
Á fyrstu starfsárum félagsins var
Zöllner stórkaupmaður í Newcastle
umboðsmaður þess erlendis; hann út-
vegaði allar aðfluttar vörur og keypti
allar gjaldeyrisvörur félagsmanna.
Zöllner var góður fulltrúi og gegndi
ekki ósvipuðu hlutverki fyrir íslenzku
kaupfélögin og S. í. S. nú; oft mun
hann hafa hjálpað félögunum yfir
byrjunarerfiðleikana og látið þau
hafa vörur, án kröfu um það, að
greiðsla væri lögð í lófa hans um leið.
Zöllner kom oft til Svalbarðseyrar,
haust og vor, og var í vinfengi við
forvígismenn félagsins. Það er haft
UtibU Kaupfélags Svalbarðseyrar við Fnjáskárbrú
36