Samvinnan - 01.12.1949, Qupperneq 56
krabbameins. — Eftir Hiroshima-
sprengjuna var mikið talað um það. að
áhrif kjarnorkunnar á menn væri m.
a. sú, að þeir yrðu ófrjóir, en eftir
rannsóknirnar á Bikini og niðurstöð-
ur þeirra um þetta, hefur ekkert af
dýrum þeim, sem notuð voru til rann-
sóknanna, sýnt dæmi um þetta. Þvert
á móti liggja fyrir skýrslur, sem sýna
hið gagnstæða. Hið merkilegasta af
tilraunadýrunum við Bikini er svín
311. Það er ung gylta, sem synti í
hinu geislavirka vatni í flóanum,
tveim dögum eftir sprengjuna. Hún
var tekin um borð í eitt af skipunum,
og búizt var við að hún myndi fljót-
lega deyja. En gyltan dó ekki, og í dag
er hún fílhraust, stór og stæðileg og
vegur 200 klíó. Hún er ófrjó, en lækn-
ar fullyrða, að það muni hún hafa ver-
ið áður, og það sé ekki í neinu sam-
bandi við kjarnorkusprengjuna.
Erfðasérfræðingar, sem hafa haft
með höndum rannsóknir við Bikini,
álíta, að mikið af fóstrum muni hafa
dáið við sprenginguna.
Getur kjarnorkan framleitt
krabbamein?
Meðal hinna fjölmörgu vísinda-
rannsókna, sem gerðar eru á kjarnork-
unni bæði í Japan, Ameríku og við
Bikini, munu einar hinna umfangs-
mestu vera um samband kjarnorkunn-
ar og krabbameinssjúkdóma. Því hef-
ur verið haldið fram að kjarnorkan
geti framleitt krabbamein. Sem dæmi
hefur verið getið um 47 ára gamlan
Japana, sem hafði 155 krabbamein í
líkamanum, er hann dó, og voru þau
öll nálægt brunaörum á líkama hans.
Vísindamennirnir hafa engu slegið
föstu um þetta atriði enn, en beðið er
eftir, hvað hinar umfangsmiklu rann-
sóknir muni nánar leiða í ljós.
„Atom“-veikin, sem hér hefur verið
minnst á að framan, er sá sjúkdómur,
sem þegar er vitað með öruggri vissu,
að komi fram hjá bæði mönnum og
dýrum, sem verði fyrir kjarnorkunni.
Síðastliðið vor veiktist píanósnill-
ingur af „atom“-veikinni. Það var frk.
Palchikoff, dóttir Serge Palchikoff,
sem er kennari við hljómlistarháskól-
ann í Hiroshima. Hún hafði ekki orð-
ið fyrir neinu að því er talið var, þegar
sprengjann fél 1 á Hiroshima, en hún
skýrði læknunum frá því síðar, að hún
hefði tekið þátt í því að hjálpa hinum
56
særðu í borginni. Þrem árum eftir það
fékk hún veikina, og var það á hljóm-
leikaför í Ameríku. Enn vita menn
ekki, hvort takast muni að bjarga lífi
hennar, en hún hefur legið í Washing-
ton, þar sem læknar hafa reynt að gefa
henni algerlega nýtt blóð.
Undranálin — Cobalt 60.
Miklar vonir eru tengdar við kjarn-
orkurannsóknirnar fyrir læknavísind-
in og hina sjúku. Ýmsar merkar upp-
götvanir hafa þegar verið gerðar, og
eru jrar á meðal hinir svonefndu „tso-
toper“ radioactive Isotopers), sem á að
vera hægt að nota við lækningu
krabbameins. Hið nýjasta, sem fram
hefur komið af þessu er hið svonefnda
Cobalt 60, sem nú er framleitt í kjarn-
orkuverksmiðjunum í Oak Ridge. —
Þetta vopn gegn krabbanum er á stærð
við grammófónnál, og nálinni er
stungið beint í þá staði líkamans, sem
eru veikir af krabbameini. Tilraunir
með tæki þetta hafa verið gerðar á
sjúkrahúsi einu í New York, Memorial
Hospital, og er sagt að árangur þeirra
hafi verið góður.
Geislaverliunin og grasvöxturinn.
Aðrar tilraunir miða að því, að fram-
leiða geislavirk áburðarefni, sem eigi
að geta leitt af sér fljótari og meiri
vöxt á plöntum, grænmeti og korni.
Kjarnorkumálanefndin hefur enn
ekki viljað gefa nein loforð í þessu
sambandi, en hún hefur látið þess get-
tið að tilraunirnar séu umfangsmiklar
og merkilegs eðlis. Yfirleitt efast eng-
inn um, að í kjarnorkunni leynist ótal
möguleikar fyrir mannkynið, og verði
hún notuð í þágu menningarmála og
friðar muni hún geta gjörbreytt lifn-
aðarháttum mannanna.
A. S.
(Þýtt úr grein eftir Povl Westphall).
Samvinnutryggingar
Brezk blöð greina frá þeirri ákvörðun
brezku ríkisstjórnarinnar, að hverfa frá fyrri
áætlunum um að þjóðnýta vátryggingastarf-
semina í landinu. í þess stað hyggst stjórnin
að stuðla að því að tryggingarnar verði rekn-
ar á samvinnugrundvelli. Þessi breytta afstaða
er mikill sigur fyrir samvinnuhreyfinguna í
Bretlandi, sem lengi hefur rekið vátrygging-
arstarfsemi, því að samvinnumenn voru mjög
andvígir þjóðnýtingu vátrygginganna. Hafa
blöð samvinnumanna ritað skelegglega gegn
því, að ríkisvaldið teygi sig inn á svið sam-
vinnustarfsins.
„Amarfell"
komið til landsins
Hinn 25. nóvember kom hið nýja
skip Sambands ísl. samvinnufélaga,
„Arnarfell", til heimahafnar sinnar í
Húsavík. Áður hefði skipið tekið land
á Reyðarfirði. Frá Húsavík hélt skip-
ið til Akureyrar og síðan vestur með
landi og suður til Reykjavíkur, með
nokkrum viðkomum. Skipinu var
hvarvetna vel fagnað af samvinnu-
mönnum. Aðalmóttökuathöfnin var í
Húsavík, sem valin var heimahöfn
skipsins til heiðurs Kaupfélagi Þing-
eyinga, elzta kaupfélagi landsins. Er
skipið lagðist að bryggju í Húsavík
síðdegis föstudaginn 25. nóv., var efnt
til móttökuathafnar á bryggjunni. —
Voru þar flutt velkomandaminni í
óbundnu og bundnu máli og sungið.
Um kvöldið hafði Kaupfélag Þingey-
inga boð inni fyrir skipshöfn og gesti,
en að því loknu hafði SÍS kvöldverð-
arboð um borð í skipinu. Voru marg-
ar ræður fluttar í þessum hófum báð-
um og fögur kvæði. Á Reyðarfirði
hafði einnig verið efnt til móttökuat-
hafnar, svo og á Akureyri og öðrum
þeim stöðum, sem skipið hafði við-
komu á á suðurleið.
Þessi glæsilega viðbót við skipakost
samvinnumanna vakti hvarvetna
mikla athygli og mikinn fögnuð, ekki
sízt úti um byggðir landsins. Sjálf-
stæðar siglingar SÍS-skipa eru upphaf
nýs kapítula í sögu samvinnuhreyf-
ingarinnar á íslandi, og binda sam-
vinnumenn miklar vonir við hann.
„Arnarfelli" hefir áður verið lýst í
Samvinnunni. Ber öllum saman um
að skipið sé hinn glæsilegasti farkost-
ur, ágætlega búið og vandað í hví-
vetna. Skipstjóri er hinn ungi og öt-
uli farmaður Sverrir Þór, sem áður
var skipstjóri á „Hvassafelli".
Norræn tryggingasamvinna
í september var haldin samnorrænn sam-
vinnutryggingafundur í Kaupmannahöfn.
Mættu þar fulltrúar allra samvinnutrygginga
Norðurlanda. ísland var í fyrsta sinn þátttak-
andi í slíkri norrænni ráðstefnu.