Samvinnan - 01.02.1968, Page 9
Fjalli, 2. okt. 1967.
Samvinnan, Reykjavík.
Það var við ein af nokkrum
hamskiptum Samvinnunnar —
ég ætla að það væri þegar
Jónas Jónsson lét af ritstjórn
— að 2 granna mína bar að
garði. Þeim var sjálfboðið inn,
og báðir setztir inn í eldhúsi,
annar á bekk, hinn á búrkist-
una. Ég stóð á miðju gólfi,
verið að hella upp á könnuna.
— Hvernig lízt ykkur á nýju
Samvinnuna? sagði sá gest-
anna, er á bekknum sat, strauk
lófum um hnjákollana, leit upp
og kímdi við.
— Illa, svöruðum við hinir
báðir samtímis.
— Nú, hvað þykir ykkur að
henni?
Við tíndum eitt og annað til;
sumt man ég, annað er gleymt.
— Já, já, já.
— En þér, sagði annar okk-
ar, hvað finnst þér?
— O, ég veit það, hún er
ekki skrifuð fyrir okkur, bænd-
ur og reynda kaupfélagsmenn,
þess þarf ekki. Nú er það unga
fólkið í bæjunum sem á að ná
til.
— Jæja, sagði hinn gestur-
inn, verði þeim að góðu.
Síðan þetta var hefur margt
gerzt, bæði unnizt og tapazt á
ótal sviðum, en eitt hefur þó
ekki breytzt. Enn eru það
bændur og sveitafólk sem
mynda kjarna kaupfélaganna.
Þau félög öll öflugri og traust-
ari sem eru að meginhluta
skipuð bændum. Það virðist
því enn að viðhorf gestsins
forðum sannist, að fyrir bænd-
ur þurfi ekki að halda úti
tímariti, væntanlega ekki bæj-
arbúa heldur, yngri né eldri.
Nú þurfi samvinnumenn
einskis sérstaks málgagns, en
geti hinsvegar haldið uppi ó-
hlutdrægu menningarmálariti.
Vel ef svo væri, en byrjunin
spáir engu góðu. Nýi ritstjór-
inn, sem kynnir efni og stefnu
blaðsins í formálsorðum, fellur
sjálfur í þá gröf sem hann
áfellir félaga sína fyrir að hafa
lent í. Stóryrða- og sleggju-
dómagryfjuna. Örfá dæmi
sanna þetta. Umræður ís-
lenzkra blaða eru að jafnaði
marklaust karp. — Enginn
heilvita maður tekur dægur-
málaskrif dagblaðanna alvar-
lega. — Blaðaskrif um þjóðmál
eru meðal þess andlausasta og
þrautleiðinlegasta, sem hér er
framleitt, og er þá langt jafn-
að. — Menntamál hér á landi
hafa verið látin dankast í tvo
áratugi. — Hér virðist nær
sanni að segja að breytingarn-
ar sem þá voru gerðar á
fræðslumálunum hefðu reynzt
VÖKI BÍ LST.IÓUAR. FLI TM\(iAFVIURTÆKI,
\Vtt FRÁ VAI XHALL
BEDFORDKM
Vélin er ný 466 cubic tomniu diesel vél. Burðurþol «
framöxul er 6622 hg og á afturöxul 10206 hg.
Fullhomið, tvöfalt herfi er ú lofthemlum.
Bíllinn er með innbyggðu vöhvastýri og fimm gíra sam-
hœfðum gírhassa.
Burðarþol á grind er tœp 12 tonn og hlassþunginn tœp
10 tonn, m. ö. o. fullhomin nýting.
Verðið á bílnum og á varahlutum ásamt hostnaðarverði
á flutningstonni nuelir ullt með því að endumýja með
BEDFOBD. Þetta veldur einnig því að BEDFOBD EB
MEST SELDI VÖBliltÍLLlVIX 1 ÍSLWDl EIVS OG t SVO
MÖBGLM LÖDiDLM ÖDBLM.
JVánari upplýsingar um þessa stœrð og aðrar af Bedford
vörubílum gefur:
VAUXHALL-BEDFORD UMBOÐIÐ
Ármúla 3, sími 38 900.
5