Samvinnan - 01.12.1984, Blaðsíða 51
sagði að sér stæði í rauninni á sama.
Það væri alls ekki hægt að ögra henni
á þennan hátt, sagði hún. Hún var
þreytt. Þreytt, það var það sem hún
var fyrst og fremst.
Aðeins þegar fjölskyldan kom í
heimsókn, systkini hennar og frænd-
fólk Karínu, vildi hún óð og uppvæg
skapa ímynd hamingju okkar. Hún
lék hugljúfa þætti úr lífi litlu ham-
ingjusömu fjölskyldunnar.
Hún áleit að móðir hennar, faðir
hennar, systkini hennar, frændur og
frænkur ættu við nógu mörg vandamál
að stríða. Og þeirra vegna tók hún að
sér hlutverkið, hamingjusöm ung
móðir og hamingjusöm ung hús-
móðir.
Þessi þættir fóru í taugarnar á mér
vegna falskrar yfirborðssælu og ég get
vel ímyndað mér að hún hafi æft þá
fyrirfram. Hún lofaði Karínu súkku-
laði og ís fyrir að taka þátt í þessu.
Hún gerði sér ekki nærri eins dælt við
mína fjölskyldu.
Ef svona sunnudagur misheppnað-
ist hjá henni, átti hún til að leggjast í
vikulangt þunglyndi. Ef Karína var
ómöguleg. Ef ég fór að skammast.
Eða ef við rifumst. Ef henni fannst
hún áreitt í þessari uppgerðarsælu
sinni, þá var það nánast fastur liður að
við færum að rífast.
Stundum fannst mér að rifrildin
okkar kynnu að líkjast einhverju
eftir Bergmann. Öðrum stund-
um höfðust þau ekki upp fyrir teikni-
myndaplanið. Og það var einungis af
fjárhagslegum ástæðum að diskarnir
fengu ekki að fljúga.
Það hlýtur að hafa verið eftir mis-
heppnaðan sunnudag, að mér varð
gengið út á baðherbergið. Hún hafði
ekki læst að sér og ég vissi að hún var
þar.
Handleggir hennar hvíldu a hand-
laugarbarminum. Hún hélt á rakvél-
arblaði í hægri hendi. Eins og hún
vildi þannig dáleiða sjálfa sig til að
færa sér í nyt blaðið sem hvíldi milli
fingra hennar. Skínandi skarpt og
gljáandi.
Var henni alvara? Ætlaði hun ser.
Eða var þetta bara leikur? Reyndi hún
að gera dvöl sína á baðinu meira
spennandi með þessu móti?
Hún lét sem hún sæi mig ekki.
Hún sagði: „Ég varð ekkert vör við
þig“.
Hún sagði: „Bráðum fer hann að
rigna“. . , , .,
Pegar við vorum komin 1 rumiö,
rétti hún mér höndina. Hún var ekki
vön því. , . , ,
Þetta sumar leigðum við okkur hus
við ströndina.
Stundum fannst mér,
að rifrildin okkar
kynnu að líkjast
einhverju eftir
Bergmann.
GLEÐILEG JOL
FARSÆLT NÝTT ÁR
Þökkum viðskiptin á liðnu ári
KAUPFÉLAG STYKKISHÓLMS
Stykkishólmi
Óskum landsmönnum öllum
GLEÐILEGRA JÓLA
ogfarsœldar á komandi ári
Þökkum gott samstarf og viðskipti á liðnum
árum
KAUPFÉLAG BERUFJARÐAR
Djúpavogi