Samvinnan - 01.12.1984, Page 71

Samvinnan - 01.12.1984, Page 71
vildi eftir hennar dag, - eins og hún hafði skapað það og skilið við það. Þeim fyrirmælum hefur líka trúlega verið fylgt. Márbakki var opnaður almenningi árið 1942, og afar mikill fjöldi gesta hefur síðan skoðað hið fagra og fræga heimili skálddrottning- arinnar sænsku. Við, þátttakendurnir á norræna bindindisþinginu í Karlstað, gengum í hljóðri hrifning um þennan helgidóm Svía og hlýddum um stund, alltof stutta stund, á skýringar gamallar vinkonu skáldkonunnar á því, sem fyrir augu bar á meðan við gengum um heimilið. Hér að framan hefur verið vikið að sumu af því sem hún sagði, en þó miklu meira sleppt. Það yrði alltof viðamikið, alltof mikið mál, ef sagt yrði frá því öllu. Það er líka mála sannast, að þegar við stöndum andspænis því, sem er mikilfenglegt og göfugt, þá er ekki hægt að lýsa því svo að vel sé, - þá nægja ekki orð til túlkunar. Menn verða að sjá það sjálfir og njóta þess í orðvana hrifni. Heimili hinnar göfugu skálddrottningar Svía er eitt af því. # Hundrað höggmyndir Frá Márbakka héldum við til bæjarins Sunne, sem er snotur bær á mörkum Efra- og Mið-Fryken. í bæ þessum þjónaði lengi prófasturinn, Anders Fryxell, en það var einmitt hann, sem orti hinn dáða byggðarsöng Verm- lands og raunar allrar Svíþjóðar: „Ack, Vármeland, du sköna,“-ljóðið fagra, sem ég minntist á fyrr og náð hefur inn að hjartarótum sérhvers Svía. Eftir nokkra töf á bæ þessum héld- um við til staðar, sem nú á seinni árum er ekki aðeins mjög umtalaður í Svíþjóð eins og Márbakki, heldur einnig í öllum nágrannalöndunum og raunar miklu víðar. Þetta er stórbýlið Rotneros, eða með öðrum orðum Ekeby í hinni frægu Gösta Berlings- sögu Selmu Lagerlöf. Eigandi Rotner- os um langt skeið, iðjuhöldurinn mikli og hugsjónamaðurinn, Svante Pálsson, varði miklu af auði sínum til þess að gera 40 hektara svæði að yndislegum lystigarði, frábærlega vel skipulögðum, þar sem ekki eru aðeins undursamleg tré ýmissa tegunda, gróðursett á hinn fegursta hátt, heldur dásamlegasta blómskrúð, sem hvar- vetna er komið fyrir af listrænni smekkvísi. Þarna eru líka nokkur GLEÐILEG JOL FARSÆLT NÝTT ÁR Þökkum viðskiptin á liðnum árum KAUPFÉLAG SVALBARÐSEYRAR Svalbarðseyri Óskum landsmönnum öllum GLEÐILEGRA JÓLA og farsœldar á komandi ári Þökkum gott samstarf og viðskipti á liðnum árum KAUPFÉLAG HVAMMSFJARÐAR Búðardal 71

x

Samvinnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.