Andvari - 01.06.1959, Síða 18
16
SIGUIIBJÖRN EINARSSON
ANDVAIU
viðleitni frá þessuni heimi fyrirbæranna og beina henni að hugarheiminuni
ósýnilega og himneska. Margir aðrir mætir spekingar grískir voru á líkri
skoðun, enda átti hún djúpar rætur í trúarlífi þjóðarinnar. Þessi afstaða og
lífsskoðun ruddi sér til æ meira rúms í íornöld og má segja, að hún mótaði
andlegt líf í hinum grísk-rómverska heimi um það leyti sem kristin trú fór
að láta nokkuð verulega til sín taka. Og þó að kirkjan yrði vissulega fyrir
áhrifum af þeim heimsflótta- og meinlætaskoðunum, sem fylgdu og hlutu að
fylgja þessari tvíhyggju, þá var kirkjan sjálfri sér samkvæm og furðulega óbil-
gjörn í því að hvika ekki frá þeirri grundvallarkenningu, að þessi veröld efnis,
rúms og tíma sé sköpuð af einurn, sönnum, góðum Guði, og lýsa það villu,
að efnisheimurinn sé í eðli sínu vondur. Hið illa býr ekki í efninu, syndin
er ekki í líkamanum, sagði kirkjan. Syndin er vansköpun mannsviljans og
sjálfsskaparvíti, hitt er allt gott, sem Guð hefur gjört.
Merkur hugsuður, Friedrich Gogarten, segir, að kristindómurinn hafi
ráðið úrslitum um mótun Evrópumannsins til vísindalegrar áttar, vegna þess
að boðskapur hans liafi — í miklu ríkara rnæli en grískri heimspeki nokkru
sinni tókst eða hefði getað tekizt — gert manninn vitandi um sjálfan sig sem
persónu, með sjálfstæðri ábyrgð fyrir höfundi sínum og allra hluta.
Kristin guðstrú hóf manninn yfir náttúruna. Sá skapari, sem Biblían
boðar, skipaði manninum á vissan hátt sér við hlið í afstöðunni til handa-
verka sinna. Hann sagði við manninn: Náttúran er mín, en hún skal líka
vera þín, í mínu umboði. Þú átt hvorki að hata jörðina né flýja hana. Þú átt
að gjöra þér jörðina undirgefna. Þú átt ekki að snúa baki við náttúrunni. Þú
átt að sigra hana.
Slíkan skapara boðar engin trúarbók veraldar nema Biblían — og Kóran-
inn, að því leyti sem hann bergmálar Biblíuna í vissum atriðum. Sá maður,
sem trúði á þennan skapara, hlaut að hugsa öðruvísi til náttúrunnar en hinn,
sem þekkti hann ekki. Hann hlaut að kenna lotningar gagnvart þeim heimi,
sem lionum var gefinn á þennan hátt. En hann hlaut líka að kenna öryggis
gagnvart honum og lögmálum hans. Þessi heimur og fyrirbæri hans voru hvorki
kosmískt slys né sjónhverfing, blekking, maya, eins og verið hefur boðskapur
indverskrar trúar og heimspeki frá elztu tímum og fram til þessa dags.
Þessi heimur var sannur. Grísk og indversk dulúð segir: Þú finnur engan
sannleik í heimi efnisins, á sviði náttúrunnar, því að þar er enginn veruleiki,
og sé hann einhver, þá er hann illur. Biblían segir: Þú finnur víst sannleik
og veruleik í þessum heimi, í hverju náttúrlegu fyrirbæri, því að sannleikans
Guð er að baki alls. í hverri leit þinni að sannleik ertu í rauninni að ganga
til móts við skaparann.