Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1959, Page 62

Andvari - 01.06.1959, Page 62
60 BJARNI BENEDIKTSSON ANDVARI við hart og títt og birti í næsta liefti hvassyrta grein um kvæðin. Greinin nefndist Guðlast, og sagði þar svo meðal annarra orða: . . Bæði þessi kvæði eru í rauninni ekkert annað en guðlast. Engin göfug hugsun liefur vakað l’yrir höfundinum, þegar hann settist niður og fór að ríma, heldur það eitt að hafa eitthvað illt að segja um guð hinna kristnu og kristindóminn. . . . Það er ekki auðvelt að sjá, hvað ritstjórum Sunnanfara hefur gengið til að taka slíkt kvæði sem þetta (þ. e. Orlög guðanna) upp í blaðið. . . . Haldi hlaðið þessu áfram, hljóta góðir menn að fá óbeit á því og neita því um húsrúm“; enda kvað greinarhöfundur og, að efnið í Örbirgð og auði jafngilti „lygafregn". Síðar í greininni ræddi hann um íslenzka náms- menn í Kaupmannahöfn almennt, urn „svall“ þeirra og „trúleysi" — og sagði: „Þeir hefðu unnið sjálfum sér og þjóð sinni miklu meira gagn með því að gjörast smalar eða fiskimenn heima á ættjörð sinni". Ritstjórar Sunnanfara ættu ekki að „lýta blað sitt með aðfengnum óþverra“. Þorsteinn Erlingsson tileinkaði „vesturheimsprestunum íslenzku", vanda- mönnum Sameiningarinnar, kvæði sitt „Á spítalanum" árið 1895; að öðru leyti fara ekki sögur af viðbrögðum hans við þessari grein. íslendinga í Kaupmanna- höfn rak heldur engin nauður til að kippa sér upp við hana, en þeir svöruðu henni þó með næsta fágætum hætti. Og þá er aftur komið að klausunni í marz-hefti Sunnanfara 1893. Þar segir að umvandanir Sameiningarinnar „við Sunnanfara fyrir ýmislegt það, er staðið hefur í blaðinu", hafi fengið lítinn byr „hér hjá íslendingum í Höfn, en þó hafa þær orðið til þess, að allmargir (um 40) íslenzkir menntamenn hér létu dálítið fé af mörkum og færðu það Þorsteini Erlingssyni, 15. febrúar, í virðingarskyni fyrir skáldskap hans í Sunnanfara. Vér færum því bæði gefendunum og Sameiningunni þakklæti skáldsins og blaðsins". Meginatriði frásagnarinnar fara ekki milli mála. Það má enda þykja sennilegt, að Jón Þorkelsson ritstjóri Sunnanfara hafi verið í hópi þeirra sem sóttu Þorstein heim þennan dag — vinfengi þeirra var svo háttað um þær mundir. Hinsvegar hafði Sameiningin ekki fundið að neinu efni Sunnanfara, öðru en þessum tveimur kvæðum Þorsteins, og borið ella lof á ritið. Þá virðist og einsætt að gjöfin er ekki gefin Þorsteini í virðingarskyni við allan skáld- skap hans í Sunnanfara, heldur einvörðungu við Örlög guðanna og Örhirgð og auð — fjölyrðin um Sameininguna taka af öll tvímæli urn það. Gefendurnir eru í senn að storka henni og lýsa samstöðu sinni með skáldinu. Ég vona þessi stuttaralega frásögn veiti lesendum færi á að skilja umrætt kvæði Þorsteins Erlingssonar nokkru nánari skilningi en áður. Mergurinn málsins er sá, að það er miklu persónulegra verk en inenn hafa ætlað. Þor-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.