Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1990, Síða 33

Andvari - 01.01.1990, Síða 33
andvari JÓN LEIFS 31 XIV Hinn 11. júlí 1947 gerðist sá harmleikur, sem risti Jón dýpra og sárar en nokkur annar atburður á lífsleið hans. Dóttir hans, Líf, sem þá var að- eins sautján ára gömul, drukknaði þann dag á sundi milli Jakobseyjar við vesturströnd Svíþjóðar og lands. Líf sótti þetta sumar fiðlutíma hjá Charles Barkel í Hamburgsund, og var hún vön að byrj a hvern morgun á því að synda þessa kílómetralöngu leið á milli eyjar og lands. Þenn- an örlagaríka morgun var sjórinn óvenju kaldur og varaði fiskimaður Líf við því að leggjast til sunds. Annie og Snót komu á vettvang daginn eftir og sýndist mönnum Annie vera stjörf af sorg. Eftir níu daga leit fannst lík Lífar og var hún síðan lögð til hinstu hvíldar í Reykjavík.43) Annie og Snót fluttu síðar meir til Reykjavíkur þar sem Annie bjó þeim heimili á Nýlendugötunni og hafði viðurværi af því að kenna á píanó í einkatímum. Annie lést 3. nóvember 1970, þá sjötíu og þriggja ára gömul. Jón fékk útrás fyrir harm sinn yfir dauða Lífar í tónsmíðunum. Hann samdi þrjú undurfögur verk í minningu hennar, Requiem (sálumessa) op. 33 fyrir blandaðan kór, Erfiljóð - In memoriam op. 35 fyrir karla- kór, og strengjakvartettinn Vita et mors op. 36. Þessi verk lýsa öll stirðnaðri sorg og djúpum sársauka, en um leið kveikja þau von hjá áheyrandanum um eilíft líf og birtu. Kvartettinn er í þremur þáttum (Bernska, Æska og Sálumessa - Eilífð), en hið kyrrláta Requiem, sem samið er við ljóð Jónasar Hallgrímssonar og við brot úr þjóðvísum, er ein óslitin hljómadýrð. Þessi hljómadýrð líður áfram í hægu hljóðfalli, sem í senn minnir á öldufall sjávarins og á hreyfingu barnsvöggunnar. XV Flestar heimildir um Jón bera vott um, að hann hafi verið maður djúprar alvöru, jafnvel angistar. Þrátt fyrir öruggt fas og stundum þóttafulla framkomu var lund hans viðkvæm. Hann var stórlyndur en fljótur til sátta, hlýr í viðmóti við flesta en sú hlýja gat breyst í harðn- eskju ef honum fannst að sér sótt. Tilfinningum sínum flíkaði Jón aldrei. í störfum sínum var hann kjarkmikill og áræðinn og þótt á móti
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.