Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1990, Page 106

Andvari - 01.01.1990, Page 106
104 JÓNAS KRISTJÁNSSON ANDVARl Þótt vér trúum því að Snorri hafi skrifað Egilssögu á eftir Heimskringlu - eða að minnsta kosti á eftir fyrstu sögunum í Heimskringlu, því auðvitað hefur konungabókin verið lengi í smíðum - þá skulum vér ekki halda fast í þá hugmynd að hann hafi endilega ritað Eglu rétt fyrir dauða sinn. Sturla Þórð- arson minnist aðeins einu sinni á ritstörf Snorra frænda síns, og þykir mönn- um það heldur rýrt, en vissulega er þó betra að hafa það en missa. Sturla segir svo frá atburðum sumarsins 1230: „Nú tók að batna með þeim Snorra og Sturlu“ (þ.e.a.s. Sturlu Sighvatssyni, öðrum bróðursyni Snorra), „og var Sturla löngum þá í Reykjaholti og lagði mikinn hug á að láta rita sögubækur eftir bókum þeim er Snorri setti saman.“ Nú liggur nærri að spyrja: Skyldi Egilssaga hafa verið ein þessara „sögubóka“? Það stóð vissulega nær Sturlu Sighvatssyni að láta endurrita sögu forfeðra sinna heldur en sögur einhverra konunga í fjarlægu landi. Sé þessa rétt til getið hefur Egilssaga verið sett saman um eða laust fyrir 1230. X Nú skal ég að lokum reyna að draga saman kjarna þess sem hér á undan var rakið: 1. Vér höfum enga örugga vissu um það að íslendingasögur séu sem bók- menntir svo gamlar sem talið hefur verið, sem sé frá lokum 12. aldar eða frá upphafi hinnar 13. 2. Ef margar íslendingasögur hefðu verið ritaðar á fyrra hluta 13. aldar svo sem talið hefur verið, væri með ólíkindum að ekkert handritsbrot er til frá þeim tíma. Nær öll handrit íslendingasagna eru miklu yngri, frá lokum 13. aldar og enn síðari tímum. íslendingasögur munu því vera yngri bók- menntagrein en talið hefur verið. 3. Samkvæmt þróunarsögu íslenskra fornbókmennta koma íslendinga- sögur á eftir Sturlungasögum, líklega á öðrum fjórðungi 13. aldar. 4. Glöggur munur er á Sturlungasögum og íslendingasögum. Hinar fyrr- nefndu eru samtíðarsögur, ritaðar skömmu eftir að atburðir gerðust, en hin- ar síðarnefndu eru fortíðarsögur, ritaðar tveimur til þremur öldum eftir at- burðina. Þær eru ýktari og bera meiri merki skapandi rithöfunda heldur en Sturlungasögurnar. 5. íslendingasögur eru sem bókmenntir náskyldar fortíðarsögum um norska konunga, sögum sem gerast á sama tíma sem þær, á tímabilinu frá lokum 9. aldar til upphafs hinnar 11. Líkastar íslendingasögum allra slíkra konungasagna eru sögur Snorra Sturlusonar í Heimskringlu, svo sem Har- aldssaga hárfagra, Hákonarsaga góða, Ólafssaga Tryggvasonar og Ólafs
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.