Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1990, Side 114

Andvari - 01.01.1990, Side 114
112 ANDRÉS BJÖRNSSON ANDVARI Á stúdentsárum Gríms Thomsens var Grímur Jónsson móðurbróðir hans fógeti í Middelfart á Fjóni uns hann tók við amtmannsembætti á íslandi í síðara sinn. í sumarleyfinu 1839 fór Grímur Thomsen til Middelfart að heimsækja frænda sinn og nafna og fjölskyldu hans. Frænka Gríms Thomsens, kölluð Ninna, fimm árum eldri, trúði dagbók sinni fyrir komu frændans og brottför. í dagbókinni stendur við 1. júlí: „Frændi kom hingað í dag og er glaðvær eins og hann á vanda til. Okkur þykir öllum vænt um komu hans.“ Samt segir Ninna á þessum komudegi Gríms að hann hafi sýnt sér í orðum hlífðarleysi. Hún ber samt í bætifláka fyrir honum og kveður hann hafa gert þetta af ungæðishætti og fljótfærni, þótt hann hafi í rauninni viljað sér vel. Síðar stendur í dagbókinni 9. ágúst: „í dag fór frændi héðan aftur. Pabbi og hann skildu sem óvinir, en þó mun tíminn eflaust jafna þá misklíð. Báðir eru þrjózkir, en þó var það óneitan- lega skylda frænda sem yngri manns að láta undan síga. En hann þykist vera alltof móðgaður til þess, og þar af leiðandi hefur slitnað upp úr vináttu þeirra og mun föðursystur minni áreiðanlega falla það illa.“ Pessi dagbókarbrot hefur Kristmundur Bjarnason þýtt og birt í ritinu Heimdraga 1964. Þau bera líkum skapsmunum þeirra frændanna órækt vitni, þó ágreiningsefnið sé ókunnugt. Báðir voru þeir greinilega deilugjarn- ir og ófúsir að láta hlut sinn og líkjast mjög í því efni. Þetta kemur líka heim og saman við lýsingu þá af Grími amtmanni, sem Bjarni Thorsteinson amtmaður lét Pál ritara sinn skrá eftir sér blindum í elli sinni og birtist loks í Blöndu 1940. Bjarni og Grímur amtmaður voru æskuvinir, og grein Bjarna rituð af nær- færnum skilningi að því er séð verður. Hann dregur ekki dul á skapbresti Gríms, en segir: „Hvað sinnisfar hans snertir þá var hann heldur það, sem menn kalla kald- lyndur og sem þar af leiðir nokkuð stirðlyndur, því þungsinni var hans eigin- legi geðbrestur, ei ómerkjanlegur fyrir þá sem þekktu hann, jafnvel á hans yngri aldursárum. ...Það leiddi af hans eðlilega sinnisfari að hann var mikið fastheldinn á meiningu sinni og sannfæringu.“ Bjarni amtmaður skýrir líka frá mörgum eðliskostum vinar síns, gáfum hans og glæsileika, skartgirni hans og metnaði, örlæti og órofa tryggð við vini sína. Óneitanlega gætti sumra þessara eiginleika í miklum mæli hjá systur- syni hans. Nú hafði kastast í kekki með þeim frændum, og Grímur Jónsson hefur trúað Ingibjörgu systur sinni fyrir því eins og sjá má af bréfi sem hún ritar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.