Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1990, Page 119

Andvari - 01.01.1990, Page 119
andvari SKAPFERLI GRÍMS THOMSENS 117 þóttu miklir málafylgjumenn, vel gefnir og harðskeyttir í sókn og vörn. Al- ræmdastur þeirra hefur víst orðið Porvaldur Jónsson, lengi bóndi á Gauksmýri í Húnavatnsþingi, auknefndur Beina-Þorvaldur. Voru þau bræðrabörn Þorvaldur og systkinin Ingibjörg og Grímur amtmaður og feður þeirra nafnar, synir Gríms lögsagnara á Giljá. Þorvaldur lenti í langvarandi málavastri 1802. Var hann borinn sökum um líkrán, jafnvel að hafa banað skipreika manni. Hann varðist vel, en virðist hafa verið skapbrestamaður og ruddamenni sem almenningi stóð stuggur af og almannarómur sýslunga hans var eftir því. Sannanir fundust þó ekki fyrir sekt hans sem nægðu til dómsáfellingar. Var hann að lokum dæmdur eftir líkum til þyngstu refsingar. Dóminum var að lokum skotið til hæstaréttar í Danmörku, og lauk nærfellt tveggja áratuga stríði hans með vægum dómi, 10 vandarhögga refsingu. Þorvaldi er svo lýst að hann hafi á yngri árum verið „bráðlyndur og hrotta- fenginn“, en seinna á ævi „skuggalegur, svartskeggjaður, skoteygður með hatt sinn slútandi niður í augu.“ Svipuð lýsing er af Jóni garðyrkjumanni, föður hans, á æskuárum. Sagt var, að Grímur Jónsson, móðurbróðir Gríms Thomsens, hefði fengið dóm frænda síns mildaðan. Víst er að Þorvaldur leitaði ásjár hans í nauðum sínum. í bréfi til Gríms bróður síns 1820 segir Ingibjörg á Bessastöðum: „...já, það er satt, þú segir í bréfi þínu að Þorvaldur Jónsson að norðan hafi beðið þig um liðsinni, en manstu ekki hvað húsfrú Pílatí sagði um árið, - haf þú ekkert að gjöra með þann réttláta -, en eg segi, - haf þú ekkert að gjöra með þann rangláta, eg held hann meðtaki, hvað hans gjörðir eru verð- ar. -Ekki gæti eg skrifað undir það að föðurætt vor sé svo slæm, þó þar í séu fáir líkar föður vors, og munu fáir líkar hans í dyggðum og ráðvendni þó í fleiri ættir sé skoðað, en það veit eg, að móðurbróðir hans (Einar Jónsson Hólaráðsmaður í Viðvík) sem hann ólst upp hjá, deyði við líkan orðstír sem faðir vor, eins afi vor (Grímur á Giljá), sem þú heitir eftir, var sérlega góður maður. Hann lifði blindur í tuttugu ár. Amma vor var mikil gáfukona (Málmfríður Jónsdóttir) og systur hennar allar kvenskörungar og fríðar sýnum. En börn ömmu vorrar hafa sum mikið útartað og barnabörn ekki minna. Hér í skólanum hef eg rekið mig á nokkra, þó ekki fáa, skólapilta, alla náskylda föðurafa vorum. - “ Ingibjörg fylgir hér almenningsálitinu á Þorvaldi frænda þeirra og varar bróður sinn sterklega við að veita honum stuðning, en henni er hins vegar mikið í mun að halda á lofti heiðri ættar þeirra. Þó að þessi leiðindamál gerð- ust fyrir minni Gríms Thomsens, er ekki að efa að honum hafa verið þau kunnug, og þau hafa gevmst en ekki gleymst hjá fjölskyldu hans. Sjálfur var Grímur á yngri árum uppstökkur og harðskeyttur eins og dæmin sanna. Gröndal segir svo frá að Grímur hafi gengið fram fyrir skjöldu í viðskiptum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.