Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1990, Side 129

Andvari - 01.01.1990, Side 129
ANDVARI A SLÓÐUM LISTASKÁLDSINS 127 af að finna prentvillur í annarra manna ritum sækja sér samt ekki yndisauka í þessa útgáfu því að fátt er að finna á þeim akri þó að gaumgæfilega sé leitað. Verkið er unnið af þremur ungum fræðimönnum, Hauki Hannessyni, Páli Valssyni og Sveini Yngva Egilssyni, og eru nöfn þeirra á titilsíðu, en fleiri urðu til að leggja hér hönd að verki við þýðingar og annað sem gera þurfti og var sumt engan veginn auðunnið svo að vel færi. Því er rík ástæða til að óska þessari ungu sveit til hamingju með unnið verk og að hafa fengið það kröfu- harða en þakkláta verkefni í hendur að sýsla um þá fjársjóði sem Jónas Hall- grímsson lét eftir sig. í því ætti að vera fólgið fyrirheit um að síðar á ævinni taki þeir upp þráðinn á ný því að enn er margt óunnið sem varðar Jónas Hall- grímsson, samtíð hans og skáldskap. Hver kynslóð þarf að fá handleiðslu um óðul Jónasar til að njóta hans til fulls í samræmi við ríkjandi skilning og túlk- un á verkum hans á hverjum tíma. Að einu leyti hefir verið farið út á nýjar brautir í þessari útgáfu. Prófessor- arnir Arnþór Garðarsson og Sigurður Steinþórsson skrifa sína greinina hvor um dýrafræðinginn og jarðfræðinginn Jónas Hallgrímsson. Báðir gefa þeir Jónasi háa einkunn fyrir framlag sitt til þessara vísindagreina. Við lestur þeirra verður ljóst hvað íslensk náttúruvísindi misstu mikils þegar hann féll frá. Reykjavíkurdeild Bókmenntafélagsins bar e. t. v. nokkra sök á því að Jónas skrifaði ekki íslenska fuglafræði eins og hann ætlaði sér um skeið, en hún vildi ekki gefa út „einhvurja fuglabók“ og þar með féll málið niður. (Sjá Aðalgeir Kristjánsson: Brynjólfur Pétursson, 63-65 nm.). Arnþór Garðars- son getur þessa ekki í grein sinni og þetta virðist einnig hafa farið fram hjá þeim sem unnu skýringarnar við þriðja bindi útgáfunnar. Ritgerðir Arnþórs og Sigurðar eru mikils virði því að þar er gerð úttekt á Jónasi sem vísinda- manni og hvers af honum hefði mátt vænta á því sviði þrátt fyrir kröpp kjör og ótrausta heilsu. Nátengt þessu eru gögnin um fráfall og krufningu Jónasar og umsögn Þorgeirs Þorgeirssonar læknis um banamein hans sem var lungnabólga. Sú vitneskja sem þar kemur fram bendir til að ólíklegt megi telja að Jónasi myndi hafa orðið langra lífdaga auðið þó að hann hefði gengið ævileið sína til enda á heilum fótum. Sigurður Steinþórsson endar grein sína á að segja að þegar Jónas Hall- grímsson féll frá 37 ára að aldri hafi hann verið búinn að sá til stórra afreka, °g vænta hafi mátt góðrar uppskeru á akri vísindanna ef örlögin hefðu viljað svo til haga. Það hlutskipti beið nýrra kynslóða. Ritgerðir Arnþórs og Sigurðar leiða hugann að því sem segja má að sé höfuðgalli útgáfunnar, að þar er hvergi að finna á einum stað greinargerð um stöðu og vægi Jónasar Hallgrímssonar í íslenskum bókmenntum. Skáldfer- '11 hans er hvorki rakinn né gerð grein fyrir þeim áhrifum sem skáldskapur hans hafði á þær skáldakynslóðir íslenskar sem á eftir honum komu og lærðu af honum. Einnig væri forvitnilegt að sjá í útgáfunni hvaðan honum kom allt
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.