Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1990, Page 133

Andvari - 01.01.1990, Page 133
andvari A SLÓÐUM LISTASKÁLDSINS 131 Eitt af því sem prýðir þessa útgáfu er eins konar æviannáll Jónasar sem útgefendur kalla „Æviskrá“. Henni fylgja „Ýmis gögn“ sem varða ævi skáldsins, flest áður ókunn. Þá eru „Ummæli nokkurra samferðamanna“ dregin saman á einn stað, nema tveir svartir sauðir skildir eftir og hafðir á öðrum stað. (Sjá Ritverk IV, 477-78). Mig langar til að bæta hér við tvennum ummælum sem er að finna í bréfa- safni Brynjólfs Péturssonar. Þau fyrri eru í bréfi frá Þórði Jónassyni 9. ágúst 1845 og á þessa leið: „Síðan eg fékk bréf frá þér, er Jónas dáinn. Hann skrifaði mér fáum dögum áður og gjörði ráð fyrir störfum, sem lífið ekki entist til að ljúka af. Þar missti ísland einn af sínum gáfuðustu ungu mönnum og sitt núverandi besta skáld.“ Síðari ummælin eru í bréfi dagsettu 30. janúar 1846 frá Benedikt Vigfússyni prófasti á Hólum og hljóða svo: „Víst hnykkti mér við, þá eg frétti voveiflegt fráfall náttúrufræðings Jónasar Hallgrímsson- ar, og fyrir mitt leyti, sá eg hönum, sem landsmanni á bak, með töluverðum söknuði, því mér virtist, fyrir þá litlu viðkynningu, sem eg hafði af hönum, að hann væri eðlilegur íslendingur.“ Þá eru birt þrenn eftirmæli sem ort voru eftir Jónas og tveggja höfunda getið. Hins vegar tóku útgefendur þá hyggilegu afstöðu að feðra ekki þriðja kvæðið, heldur eigna það Fjölnismönnum sem er áþekk lausn og þegar BSA var látin gagnast við barni sem kom undir í áningarstað bifreiða stöðvarinn- ar. Annað sem þessi útgáfa hefir fram yfir hinar fyrri er þýðingar á bréfum og ritgerðum á dönsku frá hendi Jónasar. Þegar hann á í hlut gerir lesandinn ösjálfrátt ýtrustu kröfur um málfar. Vandinn er enn meiri sakir þess að oftar en ekki er um sérhæft efni að ræða þar sem gæta verður að tvennu í einu - að raska ekki merkingu og afmá öll merki þeirrar áreynslu sem vandasöm þýðing vill skilja eftir. Það er höfuðprýði þessara þýðinga hvað frásögnin virðist átakalaus líkt og höfundur væri gestkomandi og greindi viðmælend- um sínum frá því sem hann var að fást við. Ekki verður samt sagt að þýðendur hafi beinlínis stælt orðfæri Jónasar, og er það góðu heilli því að allar eftirhermur eru dæmdar til að mistakast. Samt er eins og hér sé mælt á máli samtíðar Jónasar eins og það var látlausast og hreinast. Fyrir þetta verða ritgerðir hans oft á tíðum hreinn skemmtilestur. Áður hefir verið vikið nokkuð að skýringum einstakra orða og á það við danskan jafnt og íslenskan texta. Eg verð að játa að það kom mér á óvart að þörf væri að útskýra orðfærið á ljóðum Jónasar, en útgefendur hafa augljós- lega staðið frammi fyrir þeirri staðreynd að á því væri full þörf. Því ber að líta a orðskýringarnar sem hjálpargögn til að skilja skáldið betur og auðvelda lesandanum fulla fegurð að skoða. Jónas hefir hingað til fengið orð fyrir að vera auðskilinn og það er eitt af mörgu sem skilur á milli hans og samtíma-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.