Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1990, Page 136

Andvari - 01.01.1990, Page 136
134 DAVÍÐ ERLINGSSON ANDVARI Hrós á því skilið sá sem segir: „Ég hefekki œvinlega kjark til að hugsa um morgundaginn", vegsömum grandvarleik og vizku þess manns! En engu að síður: engu að síður kann hann að ganga ótrauður út í morguninn eftir þvílíka nótt. Og sá sem hefur skilið sjálfan sig endanlega: „ég vil ekki lifa“, eða boriðfram innstu ósk sína: „ég vildi ég hefði aldrei fœðzt“ - ekki er einusinni víst að hann hefði í fullu tré við bjartsýnina. [Pótt það afl, bjartsýnin, sem rekur mennina áfram að verkum þeirra við að reyna að bæta veröldina (sbr. næsta ljóð, framhald þessa) sé ekki annað en blindingjaglöp og sjálfsblekking og leiði þá til niðurlægingar í ótíðindun- um miklu, þá leiðir dæmaþátturinn á eftir (ekki tekinn með hér) okkur til skynjunar á mætti þess: Styrkur bjartsýninnar er mikill, þótt blekking sé. í rauninni er þetta lotningaróður til hennar, trúarljóð trúleysingja. Um það gildir einu, þótt hún sé skilgreind í framhaldinu á þessa leið:] Pví að bjartsýnin er ávani, óvani, veiklun, freisting, stríðir á móti skynseminni, lífeðlisfræðinni, sögunni, og er framleidd nú á tímum eins og hver annar iðnvarningur með bandarískri fjármögnun. [Með þeirri skilgreiningu kemur fram brotalöm. Hún er fólgin í því, að lýsingin á undan á ofurmætti bjartsýninnar gefur lesanda að skilja, að með bjartsýni sé í rauninni átt við eitthvað afar mikið og máttugt, ef til vill lífsaflið sjálft (sem ekki verður séð að sé reist á rökum), en hér kemur nú önnur túlk- un á því hinu sama afli: að það sé óvani, ávani, veiklun, freisting. Engin af þeim skilgreiningum getur komið heim við það stóra og mikilmáttuga, sem skáldið gerir sér svo vel grein fyrir á undan. En til áréttingar þessari (óvæntu) túlkun sinni kemur skáldið nú með íróníska mynd]: Ó hve himinninn er blár, ó hve hafið er bjart og augu okkar og íbúðin okkar tandurhrein og lífið með pabba og mömmu sífellt fegurra og betra. [gljámynd af hinu barnalega, yfirborðslega, ef til vill þeim sunnudaga- skólalega hamingjusvip sem lýsir af fólkinu sem syngur fögnuð sinn í banda- rískri kókakólaauglýsingu til íslendinga í sjónvarpi, svo að handhægt dæmi sé gripið. En, spyr skáldið]:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.