Andvari - 01.01.1997, Síða 75
ANDVARI
HEIMSPEKI BRYNJÓLFS BJARNASONAR
73
að hlutveruleikinn í takmörkuðum skilningi, áorkunarþáttur allrar veru, er ekki til
sem sjálfstæður veruleiki. Skoðaður út af fyrir sig er hann einungis sértak. Veruleiki
heimsins hlýtur að vera hvorttveggja í senn, hlutvera og sjálfsvera. Greining þeirra er
aðeins til í sértæku hugtakakerfi voru.9
Hér er nú komið að efni þar sem Brynjólfur gerist sérstaklega varfærinn í
orðavali sínu og að sama skapi er erfitt að túlka kenninguna sem hér er á
ferðinni. Eigum við að skilja þetta þannig til dæmis að sól og stjörnur séu
ekki bara grjót og gas heldur hugsi þær líka og segi „ég“ um sjálfar sig?
Eða eigum við að skilja þetta þannig að jörðin sem við göngum á viti að
við göngum á henni? Eða að jurtir langi til að lokka til sín flugur og þess-
Vegna láti þær sér vaxa litskrúðug blóm? Sennilega myndi Brynjólfur segja
^ð með slíkri túlkun værum við farin að teygja hugtök, sem eiga heima í
ákveðnu samhengi, langt út fyrir takmörk sín. Við værum að gera sömu
vúluna og þeir sem neita viljafrelsi mannsins af því að hann hljóti, sem
Partur af náttúrunni, að lúta náttúrulögmálunum eins og vísindin lýsa þeim.
Kenningin um að öll tilvera sé eining, andi og efni sé eitt og hið sama
O-s.frv., er í rauninni frumspekileg kenning en hinsvegar getur verið gagn-
Egt að túlka hana sem þekkingarfræðilega kenningu. Við getum skilið
hana sem tillögu um hvernig skuli haga sér við rannsókn veruleikans frem-
Ur en fullyrðingu um gerð alls veruleika. Hún er þá tillaga um að rannsaka
Slfellt hlutina út frá heildarsamhengi sínu.
Margir hafa reynt að hugsa sér einingu mannsins og náttúrunnar, finna
hvernig maður og náttúra lúti sömu lögmálum. Flestar slíkar kenningar má
flokka undir svokallaða náttúruhyggju (natúralisma) eða veraldarhyggju.
^líkar kenningar segja: maðurinn er eins og náttúran, um hann og hugsun
hans gilda náttúrulögmál. Brynjólfur virðist gera þetta úr hinni áttinni og
Segja: náttúran er eins og maðurinn, hún er líka sjálfsvera. Hugmynd hans
Svipar ákaflega mikið til kenningar Spinoza sem segir að öll tilvera sé að-
ems einn hlutur sem hann kallar ýmist „guð“ eða „undirstöðuverund“.
essi hlutur hefur óteljandi hliðar, en við þekkjum aðeins tvær þeirra, rúm-
fakið og hugsunina. Yfirleitt virðist Spinoza vera sá heimspekingur sögunn-
ar sem Brynjólfur á mest sameiginlegt með.
Ný heimsskoðun
^jða minnist Brynjólfur á hvað hann telji brýnt að móta nýja heimsskoðun,
mannkynið muni ekki lifa af á jörðinni án byltingar í heimsskoðun. Með
°kum sínum telur hann sig vera að leggja drög að henni. Hann talar til
æmis um „nýja umbyltingu í hugmyndum“.10 Orðalag hans bendir til að