Andvari - 01.01.2000, Blaðsíða 120
118
GUNNAR KARLSSON
ANDVARI
ákváðu að skipta um guði. Margt bendir til þess að germanskir konungar,
meðal annars norrænir, hafi farið með einhvers konar trúarlegt hlutverk í
heiðni, talist afkomendur guðanna og sótt valdaréttlætingu sína til þeirra.5h
Munurinn á dæmigerðri evrópskri/skandinavískri og íslenskri kristnunar-
aðferð er þá einkum sá að þar var valdhafinn fyrst og fremst fjarlægt og
ógnvekjandi afl í augum alþýðu, og rök hans til að skipta um guði hafa
væntanlega verið býsna torskilin. Hér á landi var valdhafinn nálægur og
gersamlega valdalaus nema hann gæti fengið nágranna sína til að fylgja sér
til herferða. Rökin fyrir kristnitöku voru líka nærtæk og skiljanleg, eins og
Ari lýsir þeim, að hún væri eina leiðin til að halda uppi lagaeiningu og
þokkalegum friði.
IV. Árangur og afleiðingar
Líkur benda til að kristnunaraðferð íslendinga hafi reynst í besta lagi skil-
virk Engum sögum fer af fráhvarfi frá kristni á íslandi, eins og í Noregi. I
íslendingasögum er að jafnaði gerður skýr greinarmunur á heiðnum og
kristnum tíma og miðað næsta nákvæmlega við aldamótin 1000. Þannig seg-
ir í Laxdælu um Kjartan Ólafsson, þegar hann var veginn vestur í Dölum
árið 1003, að lík hans var flutt suður að Borg á Mýrum af því að þar var ris-
in kirkja.59 Slíkum frásögnum ber auðvitað að taka með mikilli varúð; engu
að síður sýna þær hvernig 13. aldar höfundar töldu að trúskiptin hefðu
gerst, og þeir voru svo miklu nær þessum atburðum en við að við hljótum
að taka nokkurt mið af skoðunum þeirra.
í grófum dráttum fær þetta sjónarmið stuðning af fornleifum. í heiðnum
kumlum hefur aðeins fundist einn einasti gripur sem mundi vera talinn frá
elleftu öld fremur en tíundu vegna stílgerðar, þó ekki með fullri vissu.(1° Of
fá kuml hafa fundist til þess að ályktað verði af þeim að íslendingar hafi
snarhætt að heygja dautt fólk að heiðnum sið eftir aldamótin 1000. Bók
Kristjáns Eldjárns fjallar um öll kuml sem höfðu fundist fyrir árslok 1955, og
reynast þau vera 246 talsins á 123 stöðum.61 Síðan hafa fundist nokkrir tugir
kumla, svo að heildarfjöldi þeirra mun nú losa 300.62 Það væri þokkalega
marktækt úrtak, ef öll kumlin væru tímasetjanleg, en í minnihluta þeirra
eru gripir sem unnt er að tímasetja út frá stílgerð, sem var aðferð Kristjáns.
Kumlin útiloka því auðvitað ekki að einhver talsverður hluti greftrana á
elleftu öld hafi verið að heiðnum sið. Kannski er líka sennilegra að gamalt
fólk sé ekki grafið með gripi af allra nýjustu tísku. Loks er það úrtakskönn-
un sem hér er til umræðu, þótt rannsakendurnir hafi ekki gert úrtakið, og