Andvari - 01.01.2000, Page 132
130
DAVÍÐ LOGI SIGURÐSSON
ANDVARI
Ulster-sýslu.8 Að sögn Christine Dickson, dóttur McGills, hélt hann alla tíð
tryggð við átthaga foreldra sinna. Fyrir seinni heimsstyrjöld heimsótti hann
Donegal iðulega í sumarleyfum ásamt fjölskyldu sinni, „. . . en fyrst og
fremst var hann skoskur, borinn og barnfæddur í Skotlandi og þar var fjöl-
skylda hans og atvinna.“9
McGilI eldri starfaði sem steinsmiður í suðurhluta Glasgow-borgar og
Mary McGill var þjónustukona á sveitabæ. Ólst McGill upp við mikla fá-
tækt en hann þótti góðum gáfum gæddur og hlaut styrk til að leita sér
menntunar. Hann gerði að vísu hlé á námi og vann um tíma á skrifstofu
lögmanns í Glasgow en Christine Dickson segir að faðir sinn hafi á endan-
um „rankað við sér“, þá tuttugu ára gamall, og lokið við unglingaprófið
sem gerði honum kleift að sækja um inngöngu í háskólann í Glasgow.10
Samkvæmt nemendaskrám háskólans lagði McGill stund á heimspeki og
réttarsögu (constitutional history) skólaárið 1916-1917 en að því loknu
hvarf hann frá námi og útskrifaðist ekki.11 Engu að síður gerði hann ensku-
og sögukennslu að ævistarfi og hóf kennaraferihnn við Strathbungo-unglinga-
skólann í Glasgow í apríl 1917.12 Árið 1922 gekk hann síðan að eiga Eileen
O’Rourke, sem var kaþólskrar trúar, og stofnuðu þau heimili í suðurhluta
Glasgow. Varð þeim hjónum fjögurra barna auðið.13
Telja verður sennilegt að áhugi McGiIls á íslandi hafi kviknað á meðan á
námi hans við háskólann í Glasgow stóð. Þar voru kennd norræn fræði
en McGill las réttarsögu, eins og áður sagði, og málflutningur hans í The
Independence of Iceland einkennist mjög af stjórnspekilegum röksemdum
er taka mið af stjórnarskrársambandi íslands og Danmerkur annars vegar
og írlands og Bretlands hins vegar.14 Þessi nálgun var örugglega engin
tilviljun enda hafði réttarsöguritun á nítjándu öld orðið afar mikilvægur
þáttur í breskri sagnfræði og fjöldi breskra menntamanna hafði skírskotað
til íslands í gagnrýni á það nútímasamfélag sem var að verða til á Bret-
landi.15 Mest bar einmitt á þessu í norðurhluta Bretlands, eins og Andrew
Wawn hefur sýnt fram á, en þar var andstaða við höfuðborgina London
landlæg og á þeim slóðum töldu margir sig skylda hinu hrausta norræna
kyni.16
Alexander McGill náði ekki nema í skottið á þessari tískubylgju, ef svo
má kalla, en vafalítið mótaðist áhugi hans á íslandi að einhverju leyti af
þessum bakgrunni. Kynni hans af Snæbirni Jónssyni, síðar bóksala í
Reykjavík, hafa hins vegar haft sín áhrif. Það var Snæbjörn sem snaraði
sambandslagasáttmála Islands og Danmerkur yfir á ensku fyrir McGill
vegna The Independence of Iceland'1 og reyndar er augljóst af þeim um-
mælum, sem McGill hefur eftir Snæbirni í kverinu, að þeir höfðu átt vin-
samleg samskipti um einhverja hríð.18 Ómögulegt er reyndar að fullyrða
nokkuð um tildrög þessa kunningsskapar, eða hvort hann átti þátt í því að