Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1941, Page 62

Andvari - 01.01.1941, Page 62
58 Guðmundur Finnbogason andvaui vill heldur bók eða kvikmynd. Aftur mundu skrifstofumenn finna þörf á aÖ hreyfa sig eftir kyrrseturnar. Það, sem einum þykir þrælavinna, þegar það er hversdagsvinna hans, t. d. garð- yrkjustörf, þykir öðrum bezta skemmtun og hressing, þegar hann gerir það í tómstundum sinum. Ef vér lítum yfir hið helzta, sem menn verja tómstundum sínum til, þá sjáum vér, að það er raunar tvenns konar: annars vegar er það fólgið í því að horfa og hlusta á það, sem aðrir gera eða hafa gert, hins vegar í því að hafast eitthvað að sjálfur, sem rnanni er ljúft að gera. Til hins fyrra má telja: að hlusta á útvarp eða hljóðrita, fara í bíó, leikhús, hljómleika, ganga á söfn, þjóð- rninjasöfn, náttúrugripasöfn, listasöfn o. s. frv., horfa á íþróttir, kappleika o. s. frv. Til hins síðara má telja: lestur, ritstörf, tafl, spil, samkvæmislíf, ferðalag og iðkun hvaða listar eða íþróttar sem er og loks hvaða verlc sem er, ef menn vinna það af frjálsum vilja, af því að þeir kjósa það heldur en iðjuleysið. Allt getur þetta verið gott, hvað á sínum tíma, eftir því sem á stendur. Allt getur það auðgað lífið. Engu að síður verður því varla haldið fram, að það sé allt jafngott og gilt, og þá kemur spurningin: Hvar er mælikvarðinn? Eftir hverju dæmum vér, er vér segjum, að einn verji tómstunduin sínum betur en annar? Hvað mundum vér segja við ungling. sem vildi fræðast um það, hvaða skoðunarháttum hann ætti að beita, er thann ráðstafaði tómstundum sínum? Ég mundi segja við hann eitthvað á þessa leið: Ég býst við, að þú viljir verja tómstundum þínum þannig, að þær glæði lífsþrótt þinn fremur en veiki, að þú verðir heldur vitrari en heimskari, heldur betri maður en verri eftir en áður. En viljirðu þetta, þá er þess að gæta, að þróttur manns og vit og góðleiki glæð- ist hezt af samlífi við þá menn, sem sjálfir eru þessum eigin- leikum gæddir, eða af kynningunni við verk þeirra. Nú á ekki liver maður alltaf aðgang að slíkum mönnum, en í stað þess oft að verkum þeirra, sem geyma það, sem bezt var í mönn- unum. Það eru ekki margir, sem eiga því láni að fagna að kynnast persónulega mesta rithöfundi eða tónskáldi, málara, myndasmið, vísindamanni sinnar samtíðar, en verkum þess-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.