Andvari - 01.01.1933, Blaðsíða 7
Klemens Jónsson ráðherra.
Klemens Jónsson er fæddur á Akureyri 27. ágúst
1862. Foreldrar hans voru Jón Borgfirðingur rithöfund-
ur og kona hans Anna Eiríksdóttir bónda á Vögluns
Sigurðssonar. Árið 1865 fluttist hann til Reykjavíkur
með foreldrum sínum, og þar ólst hann upp.
Vorið 1877 tók hann inntökupróf í lærða skólann og
lauk stúdentsprófi 1883 með I. einkunn, 92 stigum.
Meðan hann var í skóla, vann hann á sumrum við búð-
arstörf í Reykjavík, og þá þegar tók hann að safna
ýmsum fróðleik, er við kom sögu bæjarins.
Haustið 1883 sigldi Klemens til Kaupmannahafnar og
las þar lögfræði í háskólanum. Á Hafnarárunum lók
Klemens mikinn þátt í félagslífi stúdenta, enda var hann
alla æfi gleðimaður, sem kunni vel við sig í samkvæm-
um. Hann var í miklum metum meðal stúdenta, eins og
sjá má af því, að hann var kosinn »hringjari« á Garði.
Er það ein hin helzta virðingarstaða, er siúdenti við
Hafnarháskóla getur hlotnazt, og hefir að eins einn
annar íslendingur hlotið hana.
Þann 4. júní 1888 lauk Klemens lögfræðiprófi með
I. einkunn. Eftir nokkra dvöl í Reykjavík varð hann að-
stoðarmaður í íslenzku stjórnardeildinni í Kaupmanna-
höfn. Á þeim árum fekkst hann mikið við lestur sagn-
fræðirita. Enn fremur lagði hann mikla stund á að
kynna sér þjóðfélagslöggjöf Dana. Mátti síðar sjá árang-
ur þess í starfsemi hans á alþingi.