Andvari - 01.01.1933, Blaðsíða 57
Andvari
Fiskirannsóknir.
53
wæla fisk1) og var úr nógu að moða, bæði árin, því
að afli var feikna mikill, einkum síðara árið, þegar hann
^omsf upp í 70 þús. (5000 til hlutar (500 skpd.) í 14
staði) á einum bát og meðalafli var nál. 45 þús. (3000
«1 hlutar), eftir þriggja mán. vertíð. Allur þessi fiskur
war> að heita mátti, veiddur á lóð, magur í meira lagi
£931, bæði á fisk og lifur, mun betri þó 1932, einkum
a lifrina. Það varð varla vart í nef og loðna sást
oaumast, fremur en 1929 og 1930 (sbr. skýrslu fyrir
þessi ár, bls. 105). Fiskurinn var bæði árin yfirleitt mjög
S1«ár (»smælki« eða »millifiskur«, sögðu fiskimenn), e*
þó næstum allur kominn í gagnið, tíðast með tóman
maga, eða Iítið eitt af beitu (síld), 1932 þó stundum
með nokkuð af sandsíli. 1932 var fátt af fiskinum farið
gjóta í apríl-byrjun, og hrognin yfirleitt enn föst og
Sóð verzlunarvara. 1931 var yfirleitt fleira gotið af hon-
Um, enda var þá nokkuð meira áliðið. En það er ávalt
sama sagan: þorskurinn er á þessum slóðum lítið farinn
gjóta fyrir miðjan apríl. Af öðrum fiski en þorski
fekkst aðeins fátt, eins og vant er að vera á vetrar-
^ertíðinni; er það helst stórufsi og stóri karfi (smár),
kurlýsa, lýsa, náskata, tindaskata, smálúða, steinbítur,
smálanga, smákeila og skarkoli.
Eg skal ekki fjölyrða um útgerð Grindvíkinga, þessi
ar> hún var svipuð og árið 1930 (nær 30 bátar, allir
með mótor). Aðeins skal eg taka það fram, að með
þessum skipakosti standa þeir æðimikið betur að vígi
en áður, og skal eg sem dæmi geta þess, að þegar eg
^om þangað 1931, höfðu þeir í Járngerðarstaðahverfí
J) Mag. Árni FriÖriksson gerði aldursrannsóknir á þessum
,lski °3 sýndi hann sig flestur aö vera 70—90 cm og 8—9? vetra
1931 (siá skfrslu hans 1931, bls. 48J og 75-85 cm og 8—10
vetra 1932.