Andvari - 01.01.1933, Blaðsíða 36
32
Fiskirannsóknir.
Andvarí
kemur upp í yfirhorðið. Sama má segja um hina stóru
máfugla, svartbakinn og stóra- og litla hvítmáf; af
þeim var strjálingur af hinum fyrst-talda. Svo var þar og
strjálingur af kjóum, (skúm, vætukjóa og stóra kjóa) og
einstaka súla. Margt var þar til og frá af svartfugli,
sem kafaði mikið í kringum oss (eftir augnasíli?) eða
var annars mikið á flugi út á haf, til þess að sækja sér
björg, ísrækju o. fl., út að ísnum? og inn til lands. Til
landfugla sást Iítið og einn af einkennisfuglum Norður-
flóans á sumrin, óðinshaninn, var enn ekki kominn.
Ég hafði mælt hitann í yfirborði sjávar og í lofti
öðru hvoru fyrir norðan og á leiðinni suður, líkt og ég
hafði gert á leiðinni norður (sbr. 6. bls). Hann var:
á Skagagrunni 20/5, kl. 9 f. m., 4,6° t sjó, 7,3°
— S'/5, — 11 - — 5,3° - - 7,o°
- Kólkugrunni 22/s, — 9 5,5° - — 7,8°
— 23/s, — 91/2 5,4° - — 4.50
— 24/s, — 9 - — 5,5° - — 4,3°
- Strandagrunni 26/s, — 11 - — 5,5° - — 4,o°
- Hólnum 27/s, — 9 5,5° 2,3°
undan Deildinni — — 2'/2 e. m. 5,4° - — 4,7°
við Bjargtanga — — 9 - — 7,0° - — 5,3°
Hitinn hafði vaxið nokkuð frá því sem hann var á
norðurleið, einkum við Bjargtanga og var svipaður og
hann var 1926, er ég mældi hann um sama leyti árs
á þessum slóðum (sbr. skýrslu 1925—26, bls. 72).
2. Síðari ferðina á »SkalIagrímic fór ég 7.—19. maí.
Var henni fyrst heitið til »Suður-Kanta, en svo nefna nú
togaramenn framhaldið af »Köntunum< (þá eiginlega
»Norður-Köntum<) í Faxaflóa, sunnan við innanvert
]ökuldjúp. Á þessum slóðum höfðu togarar (og meðal
þeirra »SkaIIagrímur<) aflað mikið undanfarna daga, eftir
að tók fyrir afla á Selvogsbanka, og átti nú að bæta við
aflann í síðustu útivist, sem hafði staðið stutt (vikueðasvo).