Andvari - 01.01.1933, Blaðsíða 9
Andvari
Klemens Jónsson ráðherra.
5
land mikiÖ Iand til fjalls, þar sem voru góðir sumar-
hagar fyrir gripi bæjarbúa, og auk þess var mikill hlutl
af landinu móar, er lágu nálægt bænum, og voru einkar
vel fallnir til túngræðslu, enda nú orðnir að miklu
Seyti að túnum. Vmsum bæjarbúum þótti í mikið ráðist
af kaupstaðnum að kaupa jörð þessa. Verðið var 13 500
kr., en íbúatala í bænum innan við eða um 1000. Álitu
þeir, að bærinn myndi reisa sér hurðarás um öxl með
þessum kaupum og sökkva í skuldir. En reynslan hefir
sýnt, að þetta hefir verið hið mesta happaráð, og hefir
Akureyrarbær síðan keypt mikil Iönd önnur, er lágu
umhverfis bæinn. Var það einkum Magnús Kristjáns-
son, er síðar varð fjármálaráðherra, er gekkst fyrir
þeim kaupum. Hafa þessi jarðakaup og ræktun sú, er
þá hófst, átt mestan þátt í því, að afkoma manna á
Akureyri hefir verið betri en í flestum öðrum kaup-
stöðum landsins.
Af öðrum mikilvægum framkvæmdum, er Klemens
Jónsson beitti sér fyrir á Akureyri, má nefna byggingu
barnaskólahússins. Skólahúsið var þá gamall hjallur,
kominn að hruni, en Klemens fekk komið því til leiðar,
að reist var nýtt barnaskólahús, er fullnægði kröfum
þeirra tíma. Þetta hús var notað í heilan mannsaldur,
þangað til það var orðið allt of lítið fyrir bæinn.
Eins og áður er sagt, hafði Klemens jafnan hina
nesta áhuga á samgöngumálum. Gekkst hann fyrir þvi,
að götur bæjarins voru bættar að miklum mun, og
enn fremur að gerð var hafskipabryggja á Akureyri, er
stór gufuskip gátu legið við.
Síðustu árin, sem Klemens var á Akureyri, beitti
hann sér fyrir það, að lögð yrði vatnsveita um bæinn.
Var það og gert, að lagðar voru tvær vatnsæðar til
bæjarins neðanjarðar, önnur til Akureyrar, en hin til