Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1933, Side 9

Andvari - 01.01.1933, Side 9
Andvari Klemens Jónsson ráðherra. 5 land mikiÖ Iand til fjalls, þar sem voru góðir sumar- hagar fyrir gripi bæjarbúa, og auk þess var mikill hlutl af landinu móar, er lágu nálægt bænum, og voru einkar vel fallnir til túngræðslu, enda nú orðnir að miklu Seyti að túnum. Vmsum bæjarbúum þótti í mikið ráðist af kaupstaðnum að kaupa jörð þessa. Verðið var 13 500 kr., en íbúatala í bænum innan við eða um 1000. Álitu þeir, að bærinn myndi reisa sér hurðarás um öxl með þessum kaupum og sökkva í skuldir. En reynslan hefir sýnt, að þetta hefir verið hið mesta happaráð, og hefir Akureyrarbær síðan keypt mikil Iönd önnur, er lágu umhverfis bæinn. Var það einkum Magnús Kristjáns- son, er síðar varð fjármálaráðherra, er gekkst fyrir þeim kaupum. Hafa þessi jarðakaup og ræktun sú, er þá hófst, átt mestan þátt í því, að afkoma manna á Akureyri hefir verið betri en í flestum öðrum kaup- stöðum landsins. Af öðrum mikilvægum framkvæmdum, er Klemens Jónsson beitti sér fyrir á Akureyri, má nefna byggingu barnaskólahússins. Skólahúsið var þá gamall hjallur, kominn að hruni, en Klemens fekk komið því til leiðar, að reist var nýtt barnaskólahús, er fullnægði kröfum þeirra tíma. Þetta hús var notað í heilan mannsaldur, þangað til það var orðið allt of lítið fyrir bæinn. Eins og áður er sagt, hafði Klemens jafnan hina nesta áhuga á samgöngumálum. Gekkst hann fyrir þvi, að götur bæjarins voru bættar að miklum mun, og enn fremur að gerð var hafskipabryggja á Akureyri, er stór gufuskip gátu legið við. Síðustu árin, sem Klemens var á Akureyri, beitti hann sér fyrir það, að lögð yrði vatnsveita um bæinn. Var það og gert, að lagðar voru tvær vatnsæðar til bæjarins neðanjarðar, önnur til Akureyrar, en hin til

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.