Andvari - 01.01.1933, Side 10
6
Klemens Jónsson ráöherra.
Andvarl
Oddeyrar. Var þefta hin mesta framför frá þm sem áð-
ur var. En ekki munu þessar vatnsveitur hafa verið
gerðar svo vel sem skyldi, og hafa þær kostað miklar
umbætur. Fyrir framkvæmdir sínar og stjórnsemi í Eyja-
firði hlaut Klemens miklar og langvarandi vinsældir.
fiafa margir bændur, er voru honum samtímis sagt, að
síðan er hann Iét af embætti, hafi þeir ekkert yfirvald
haft, er jafnast hafi við hann. Sjálfur sagði Klemens oft
við þann er þetta ritar, að embættisstörf hans í Eyja-
firði væri sá þáttur í æfistarfi hans, er honum væri
kærastur, og að hvergi yndi hann sér betur en í því
héraði. Ást hans á Eyjafirði kom líka í ljós í hinum
miklu rannsóknum, er hann gerði um sögu og ættartölur
Eyfirðinga, eins og síðar verður skýrt frá. Hann var
einkar heppinn í allri þátttöku sinni í héraðsmálum á
þessum árum, og hann lét það í ljós á efri árum sín-
um, að það mundi hafa verið misráðið að yfirgefa sýsl-
una, þótt hærra embætti væri í boði.
Þá kemur annar þátturinn í æfistarfi Klemens, stjórn-
málin.
Ktemens bauð sig fram til þings í Eyjafjarðarsýslu
1893, og var kosinn ásamt ]óni í Múla. Var hann síð-
an jafnan endurkosinn þingmaður, þangað til hann varð
landritari, og varð að Ieggja niður þingmennsku vegná
ambættisins. Var hann svo rótgróinn í sæti, að engum
þýddi að keppa við hann um kosningu. Hann sat ekki
á þingi 1894, því að þá var hann settur amtmaður í norð-
ur- og austuramtinu og þurfti að sitja amtsráðsfund, er
haldinn var um þingtímann.
Klemens varð brátt atkvæðamaður á alþingi, enda
var hann prýðilega máli farinn og starfsmaður góður.
En þó naut hann sín ekki eins vel sem þingmaður og
sem embættismaður. Hann þótti nokkuð fljótráður og