Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1933, Page 23

Andvari - 01.01.1933, Page 23
Andvari Fiskirannsóknir. 19 endurfengnum merkjum, skrásetur þau og kemur þeim «1 síðustu skila. Þessar merkingar féllu niður vertíðina 1930, því að þá var gamli »Þór« úr sögunni, en vetur- inn 1931 var komið skip í staðinn fyrir hann, regluleg- ur togari, nefndur »Þór«, eftir hinum, og var nú enn hægara um vik, að ná í fisk til merkingar, þar sem þetta skip hafði miklu stærri og veiðnari vörpu en hitt. Voru nú merkingarnar teknar upp aftur, undir stjórn sama foringja og áður, og framkvæmdar bæði í apríl 1931 og 1932, aðallega í nánd við Vestmanneyjar og á austanverðum Selvogsbanka. Voru merkt hvort ár fúml. 1200 af þorski og hefir þó nokkuð endurveiðst af þeim fiski. Sem þakklætisvott fyrir vel unnið verk, sendi próf. Schmidt þeim mönnum á »Þór«, er mest unnu að Qierkingunum, dálitla fjárupphæð (500 kr. danskar) Síðustu tvö sumur hefir rannsóknaskipið »Dana« verið hér við land til rannsókna, eins og áður er vikið að, og fór héðan yfir undir Grænland í bæði skiftin. Var ég á henni í Faxaflóa, yfir til Grænlands og svo norður fyrir land 1931 og í Faxaflóa og norður með vesturströndinni til Patreksfjarðar 1932. Síðastliðið ár sendu Danir hingað engan mann til þess að safna gögnum til aldursrannsókna á þorski vor Qg sumar, eins og þeir höfðu gert 1931, enda hefir ís- lenzkur maður á vegum Fiskifélags íslands, mag. Árni Friðriksson, tekið þær rannsóknir að sér, ásamt ýmsum öðrum rannsóknum á lífsháttum þorsks og síldar, sem hunnugt er. Rannsóknarstörf mín heima fyrir hafa, líkt og árin tvð áður, aðallega snúist um það, að athuga fisk þann, sem borist hefir á markaðinn í Reykjavík. sumpart á bátum ár Reykjavík, sumpart á bátum af Akranesi, úr Kefla- vík eða lengra að, á bílum, frá Sandgerði, úr Höfnum,

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.