Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1933, Page 64

Andvari - 01.01.1933, Page 64
60 Fiskirannsóknir. Andvarc ber varð ég hvorki var við hvali á ieiðinni út (o: á svæðinu fyrir austan Vestmanneyjar og út úr landssýn, þar sem farið var í birtu), né utan (úr miðjum Eyrar- bakkabug til Reykjavíkur). Á ferðum mínum á »SkaIIagrími« þessi ár sá ég að- eins 1 hval, sem mér virtist vera hrefna, á Holku- grunni, 22. maí 1931, enda þótt þær ferðir lægju um svið, þar sem búast mátti við stórhvelum, o: við brúnir landgrunnsins, en skipverjar sáu nokkur smáhveli (höfr- unga?) á Dritvíkurgrunni 8. maí síðastl. 14. júlí 1931 sá ég af »Dönu« 1 hrefnu í Jökul- djúpi og næsta dag 2 háhyrnur ca 85 sjóm. NV af Bjargtöngum, en á leiðinni heim frá >Dönu< fekk ég ýmislegt að vita um mjaldurinn við Barðaströndina (sjá Náttúrufræðinginn, II. bls. 97). 18. júlí 1932 sá ég 1 hval (hrefnu?) í Jökuldjúpi, af »Dönu«, á leið til Pat- reksfjarðar; annars sá ég engan hval í þeirri ferð, hvorki heiman né heim, en ÓI. Þórarinsson á Geirseyri sagði mér, að hvalavaða hefði komið þar inn á fjörðinn í vor er leið; eftir lýsingunni virtust það hafa verið marsvín. Samfara hinni miklu síld, sem gekk í Austfirði haustið 1931, var ekkert af hvölum, að því er mér var sagt af kunnugum mönnum, nema eitthvað af hrefnu á Norð- firði, en reyðarhvalir sáust óvenju margir suður með fjörðunum í sumar er leið. Þetta er allt það sem ég hefi séð eða spurt til hvala þessi ár, en það gefur eðlilega litla hugmynd um hvala- mergðina hér við land. Hvölum hefir eflaust fjölgað nokkuð hér hin síðari ár, vegna friðunarinnar, og afli norska hvalveiðaskipsins, sem lá hér í Faxaflóa síðastl. sumar, frá miðjum ágúst og fram til septemberloka og veiddi að sögn 291 hval hér við land og vestur um Grænlandshaf, sýnir, að slangur hlýtur að vera hér af

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.