Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1933, Page 84

Andvari - 01.01.1933, Page 84
80 Á Arnarvatnsheiði. Andvari eru þar wíst, sem aldrei hafa borið fyrir augu manna, og enn aðrir, sem aftur hafa tínzt, sem fundizt hafa íyrr á öldum. Nú hefir hraun þetta verið kannað á nokkrum stöð- um, með það fyrir augum að afstýra því, að sauðfé líði þar eins hörmulegan dauðdaga og oft hefir komið fyrir, þegar það hefir hópum saman soltið í hel í hol- um, sem þar eru grasivaxnar og girnilegar, en um leið þær gildrur, sem engri skepnu sleppa, sem ofan í þær fer. Þessum ljótu hættum hefir mikið verið fækkað með því að hlaða einstigi upp úr þeim. Er vert að geta þess, með þökk og aðdáun, er hópur ungra manna úr Reykjavík vann að því síðastliðið sumar sem sjálfboðar að hlaða þar upp úr sextíu hættulegum gjám. Þessir góðu drengir, sem eru af flokki skáta, eru þess verðir, að þeirra sé vinsamlega minnzt sem fyrirmyndarmanna. Þegar ég lít yfir þetta erindi, finn ég bezt að fátt eitt er sagt, sem vert væri að minnast. Þó má vera, að það leiði hugi einhverra, er það lesa, til hinna hreintf og fögru fjalla, sem eiga sinn góða þátt í því að lypta sálum manna til hins helga og háa. Kristleifur Þorsteinsson. Efnisskrá: Bls. Klemens Jónsson ráöherra (með mynd). Æviágrip eftir mag. Hallgrím bóhavörð Hallgrímsson............... 3 ^ Fiskirannsóhnir 1931—1932, skýrsla til stjórnarráðsins. Eftir Dr. Bjarna fiskifræðing Saemundsson........ 17 ^4 A Arnarvatnsheiði. Eftir Kristleif Þorsteinsson á Kroppi 65--80

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.