Andvari - 01.01.1927, Blaðsíða 16
14
Bjarni Jónsson frá Vogi
Andvari
frá fræðslunni og hag hennar hvert ár á fundi félagsins,
og á alþingi hefir og verið frá henni skýrt venjulega,
en yfirlit alls tímans er ekki hér fyrir hendi.
Deilur þær, sem staðið höfðu um stjórnarskrármálið,
eða sjálfstæðisbaráttuna um stjórnmálin, hafði Bjarni leitt
hjá sér allt til þess, er Landvarnarflokkurinn hófst, síðla
árs 1902. Hann hafði að vísu einatt fylgt þeim flokki,
er lengst sótti fram og því aðhylzt sjálfstæðisstefnu
Benedikts sýslumanns Sveinssonar. Var því andvígur
»Valtýskunni« og hvers konar afslætti af uppteknum og
réttum kröfum og gaf gaum því er fram fór, þótt eigi
tæki hann þá þátt í umræðum á mannfundum né blaða-
deilum. — En nokkurum árum fvrr hafði vaknað hreyf-
ing í skóla meðal skólapilta sjálfra um »frelsismál þjóð-
arinnar«. Fylgdust að nær allir skólapiltar, er nokkuð
sinntu landsmálum, og snerust af miklum áhuga á sveif
með »Dagskrá« og »Þjóðólfi« gegn »Valtýskunni«. Þann
flokk fyltu síðan inir yngri stúdentar, jafnskjótt sem við
bættist úr skóla. Þótt menn þessir væri ungir, þá kendi
þó brátt eigi all-lítilla áhrifa þeirra, því að þeir þektu
menn um land allt, hver í sínum átthögum, og lágu lítt
á liði sínu. Það hefir heyrzt meðal manna, er lítt eða
ekki vóru kunnugir atvikum þessara mála, að Bjarni
]ónsson hafi vakið þessa hreyfing í skóla, en svo var
eigi. Hann lét hana hlutlausa. Sanni nær væri að segja
hitt, að Bjarni hefði í fyrstu snúizt til athafna í stjórnar-
skrár-málinu fyrir hvatir af hálfu þessara inanna, eink-
um þar sem hann mat einatt mikils málstað æskumanna,
og að stefna þeirra var i fullkomnu samræmi við skap-
ferli hans og framsóknar-þrá. Hlaut að því að reka, að
þeir berðist allir undir einu merki. Hér er rétt frá máli
skýrt, jafnvel þótt Bjarni yrði með fram að gjalda þess